Neysla ferðamanna nánast óbreytt milli ára
folk_ferdamenn_opf_23
Ferðamenn á ferð í Eyjum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar P. Friðriksson

Nýjar tölur um greiðslukortaveltu benda til þess að neysla ferðamanna á Íslandi sé nokkurn veginn óbreytt milli ára í stað þess að dragast saman. Endurskoðaðar kortaveltutölur sem Seðlabankinn birti í síðustu viku staðfesta meðal annars þrótt í ferðaþjónustu eins og nýverið var vakin athygli á.

Kortaveltutölurnar eru í góðum takti við aðra hagvísa úr ferðaþjónustu. Þegar kemur að stöðu einkaneyslu ríma tölurnar sömuleiðis við mat ráðuneytisins, en hækkun á tölum um innlenda veltu er þó ívið meiri en gert var ráð fyrir, þótt tölurnar staðfesti að vöxtur hennar hafi kólnað mjög frá því fyrir tveimur árum síðan. Þetta kemur fram í tilkynningu frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu.

Kortavelta ferðamanna 16 milljörðum meiri fyrstu sex mánuði ársins

Fyrirtæki hér á landi hafa í auknum mæli fært sig til erlendra færsluhirða. Í þessum hópi eru nokkur af umsvifamestu ferðaþjónustufyrirtækjum landsins.

Með uppfærðum gögnum reynist kortavelta erlendra ferðmanna á föstu verðlagi vera 16 ma.kr. meiri á fyrstu 6 mánuðum ársins (+12%) en samkvæmt áður birtum tölum. Samdráttur í veltu milli ára er þannig tæpt 1% að raunvirði í stað ríflega 11% samdráttar samkvæmt fyrri tölum. Í júlí síðastliðnum jókst erlend kortavelta að raunvirði um 2% miðað við sama mánuð 2023. Samkvæmt uppfærðum gögnum hefur erlend velta á fyrstu sjö mánuðum ársins þannig verið 0,2% meiri en á sama tíma fyrir ári að raunvirði.

Þetta er í takt við ýmsa aðra hagvísa í ferðaþjónustu er varða fjölda erlendra ferðamanna, fjölda gistinátta, flugumferð, umferð um hringveginn, leigu bíla og fjöldi starfandi í greininni.

Velta innlendra korta eykst

Velta innlendra greiðslukorta á föstu verðlagi gefur góða vísbendingu um einkaneyslu en hún er nú talin 5% meiri (34 ma.kr. ) fyrstu sex mánuði ársins 2024 en samkvæmt eldri tölum. Þannig jókst velta innlendra korta um 3% að raunvirði á fyrri helmingi ársins í stað þess að dragast lítillega saman eins og fyrri gögn gáfu vísbendingar um. Í júlí var veltan 2% meiri en á sama tíma fyrir ári.

Nýjustu fréttir

Frá mjólkurkælinum til verslunarstjóra
Herjólfur slær met 
Aglow samvera í kvöld
Suðurlandsslagur í Eyjum
Kröfu um gæsluvarðhald hafnað
„60 milljónir eru þeim ofviða“
Vestmannaeyjar í fókus hjá bresku sjávarútvegsblaði
Eyjamaðurinn: Elís Þór
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.