Nóttin sem aldrei gleymist
Íris Róbersdóttir skrifar
23. janúar, 2025
SJ 42415 Gullberg VE 292 Heimaeyjargosið D1-1 23.01.1973
Frá gosnóttinni, 23. janúar 1973. Ljósmynd/Sigurgeir Jónasson

Í dag, 23. janúar eru rétt 52 ár liðin frá því eldgos braust út á Heimaey. Heilt byggðarlag lagðist svo gott sem af. Íbúarnir, eða tæplega fimmþúsund einstaklingar, þurftu að yfirgefa heimili sín um miðja nótt, og mörg þeirra áttu eftir að fara undir ösku og eld. Hluti af eyjunni okkar varð hrauninu að bráð og austurbærinn sem áður var blómleg byggð varð skyndilega horfin heimur. Þessa sögu þekkja allir Íslendingar og hér í Eyjum gerum við meira en að þekkja söguna – hún er óafmáanlegur hluti af því að vera Vestmannaeyingur.

Þessi stærsti viðburður í 1000 ára sögu Eyjanna er orðinn meira en hálfrar aldar gamall. Það eru því fyrir löngu komnar fram kynslóðir þar sem eldgosið er saga en ekki upplifun. Vissulega hefur margt merkilegt verið skrifað og tekið saman en sögur of margra eru enn ósagðar – og sumar verða því miður ekki lengur sagðar.

Það er því ómetanlegt afrek hjá Ingibergi Óskarssyni að freista þess að safna saman og skrásetja hverjir fóru með hvaða bát nóttina örlagaríku þegar hið einstaka björgunafrek var unnið við að koma Eyjabúum í örugga höfn. Ekki er það síður mikilvægt hversu mikinn metnað hann hefur lagt í að safna saman myndum af öllum bátunum, auk mynda af uppbyggingunni og margs annars sem tengist gosnóttinni og lífinu fyrst eftir að snúið var aftur heim. Fyrir þetta afrek hans stöndum við Vestmannaeyingar í þakkarskuld.

Íris í Lit

Mest þykir mér þó vænt um allar frásögurnar sem Ingibergur hefur náð að safna saman, því hver og einn einasti sem flýði Eyjar þessa örlagaríku nótt á sína sérstöku frásögn, allir eiga sína rödd sem má ekki glatast,  má ekki gleymast. Jafnvel þau okkar sem voru of lítil til að muna atburðina sjálfa eigum minningar sem aðrir hafa sagt okkur. Frásagnir þeirra sem voru með og upplifanir þeirra eru stundum svo lifandi að manni finnst jafnvel sjálfri að maður muni – þó að það sé útilokað fyrir flest okkar svona ung!

Um leið og Vestmannaeyjabær þakkar Ingibergi fyrir eljuna við að safna saman og vera óþreytandi við að leiðrétta, ná í fleiri sögur og taka saman allt það sem þarf að varðveitast um hina örlagaríku nótt og framvinduna þá er ástæða til að þakka öllum þeim sem koma að því að setja efnið upp með þeim hætti að það nái til sem allra flestra með nútímatækni. Gögnin verða gerð aðgengileg á Heimaslóð og jafnframt varðveitt í Safnahúsinu.

 Mér er ljóst að þó svo að Ingibergur hafi unnið gríðarlegt starf er enn mikið eftir, við að samræma, draga fram fleiri frásagnir og finna til fleiri myndir sem segja söguna með aðeins öðrum blæ eða annarri framvindu. Sögur af seiglu og ástríðu fyrir heimkynnunum sem var sterkari en heilt eldgos í bakgarðinum – og smám saman byggðist aftur upp það einstaka samfélag sem við þekkjum og eigum í dag.

Við þökkum fyrir það á þessum degi sem og fyrir þá vinnu sem Ingibergur Óskarsson hefur lagt á sig til að varðveita minninguna sem aldrei má gleymast.

Ég hvet bæjarbúa til að fjölmenna í Eldheima í kvöld kl. 19:30 á „Stærsta björgun Íslandssögunnar- 1973 Allir í bátana“

 

Íris Róbersdóttir, bæjarstjóri.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
Forsida EF 1 Tbl 2025
1. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst