Bæjarstjórn Vestmannaeyja samþykkti þann 31. mars sl. að kynna Lýsingu deiliskipulags í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010. Í gögnum koma fram áherslur, upplýsingar um forsendur, umhverfismat, fyrirliggjandi stefnu aðalskipulags og fyrirhugað skipulagsferli. Afmörkun skipulagssvæðis er sem hér segir: Skipulagið mun ná yfir lóðir á athafnasvæði vestan við Hlíðarveg og Strandveg og næsta nágrenni upp af lóðunum í átt að Hánni og nálægu opnu svæði. Gögn liggja frammi hjá umhverfis- og framkvæmdasviði að Skildingavegi 5 og á vefsíðu Vestmannaeyjabæjar,
vestmannaeyjar.is. Ábendingum er hægt að koma á framfæri skriflega til umhverfis-og framkvæmdasviðs Skildingavegi 5 eða á bygg@vestmannaeyjar.is innan þriggja vikna.