ÍBV sigraði Stjörnuna með sjö mörkum, 30:23 á heimavelli í Olís-deild karla í gærkvöldi. Eru Eyjamenn fyrstir til að leggja Stjörnuna og eru í þriðja sæti með sjö stig eftir fimm umferðir. Eyjamenn höfðu strax yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru yfir allan tímann. Stjarnarn átti fá svör við hörkuleik gestgjafanna í bæði sókn og vörn og í hálfleik voru Eyjamenn yfir með 17 mörkum gegn 10. Og ekkert breyttist í seinni hálfleik, ÍBV hélt sínu striki og lokatölur urðu 30:23 sem er mikill viðsnúningur eftir skellinn á móti FH í fjórðu umferð.
Markahæstir Eyjamanna voru Theodór Sigurbjörnsson sem skoraði átta og Agnar Smári Jónsson skoraði sjö.
Myndin er úr leik ÍBV og Hauka í fyrstu umferð.