Olís-deild karla - �?rggur sigur á Stjörnunni
ÍBV sigraði Stjörnuna með sjö mörkum, 30:23 á heimavelli í Olís-deild karla í gærkvöldi. Eru Eyjamenn fyrstir til að leggja Stjörnuna og eru í þriðja sæti með sjö stig eftir fimm umferðir. Eyjamenn höfðu strax yfirhöndina í fyrri hálfleik og voru yfir allan tímann. Stjarnarn átti fá svör við hörkuleik gestgjafanna í bæði sókn og vörn og í hálfleik voru Eyjamenn yfir með 17 mörk­um gegn 10. Og ekkert breyttist í seinni hálfleik, ÍBV hélt sínu striki og lokatölur urðu 30:23 sem er mikill viðsnúningur eftir skellinn á móti FH í fjórðu umferð.
Markahæstir Eyjamanna voru Theo­dór Sig­ur­björns­son sem skoraði átta og Agn­ar Smári Jóns­son skoraði sjö.
Myndin er úr leik ÍBV og Hauka í fyrstu umferð.

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.