Í dag, miðvikudaginn 10. desember er Rauði krossinn 90 ára. Af því tilefni er opið hús í Arnardrangi í dag kl. 16.00 – 18.00. Í boði eru léttar veitingar og allir eru velkomnir að skoða höfuðstöðvar Rauða krossins í Eyjum og eiga gott samfélag í tilefni af þessum stóru tímamótum í sögu félagsins.
Í blaði Eyjafrétta sem kom út í dag er sagt að opið hús verði í Arnardrangi á sunnudaginn, þar urðu Eyjafréttum á mistök, átti að standa í dag. Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.