Opna aftur eftir breytingar
Myndir og myndband
ÓPF
Miðstöðin hefur frá upphafi verið fjölskyldufyrirtæki en núverandi eigendur þess eru hjónin Marinó Sigursteinsson og Marý Kolbeinsdóttir.

Iðnaðarmenn í Vestmannaeyjum lögðu leið sína í Miðstöðina í gærkvöld en þar gátu þeir kynnt sér ýmis verkfæri sem þar eru til sölu. Einnig var boðið upp á léttar veitingar. Mar​i​nó Sigursteinsson er eigandi Miðstöðvarinnar.

„​Við vorum að opna eftir breytingar á búðinni og því var ákveðið að halda smá teiti. Einnig höldum við upp á það um þessar mundir að Miðstöðin hefur verið Fyrirmyndarfyrirtæki í átta ár. Bæði hjá Keld​unni/VB og ​hjá Credit​ info. ​Þar eru gerðar miklar kröfur​ og erum við afskaplega stolt af þeirri viðurkenningu.”

​Marinó vill koma á framfæri ​​þakk​læti til starfsfólk​s og viðskiptavin​a.​ Hann vill hvetja Eyjamenn til að versla í heimabyggð​. „Við erum til að mynda með 22-23​ í vinnu​ hjá okkur. ​Þetta skiptir allt miklu máli í stóru myndinni,” segir Marinó í samtali við Eyjafréttir. Óskar Pétur Friðriksson og Halldór B. Halldórsson mættu í teitið og má sjá myndefni frá þeim félögum hér að neðan.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dagskrá fyrsta Þorrablóts ÍBV klár
Fækkun sjúkrafluga milli lands og Eyja
Tökum þátt í að gera bæinn okkar enn betri!
Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.