Rafrænt Flugeldabingó ÍBV 2021
Flugeldabingó ÍBV verður haldið með pompi og prakt, í dag fimmtudaginn 30.desember kl.19:30. Í ljósi samkomutakmarkana verður, líkt og í fyrra, haldið bingó í rafrænu formi og verður bein útsending á ÍBV TV: https://youtu.be/D0e4JLR1NdE Spilað verður á rafrænum spjöldum, sem þátttakendur opna í snjalltæki (farsíma/spjaldtölvu) eða á fartölvu.
Spjaldið kostar 1.000 kr.- og þarf að forpanta og greiða fyrirfram. ATH, munið að senda staðfestingu á greiðslu á vilmar@ibv.is
Hérna er hlekkur inn á skráningarformið: https://forms.gle/BNERKq7hCW2YxuDv7
ATH! Skráningu lýkur kl.15:00 í dag
LEIÐBEININGAR:
Þegar búið er að panta spjald/spjöld og greiða, fær viðkomandi senda/n kóða sem hann notar til þess að skrá sig inn í bingóið í gegnum www.bingomaker.com. Þar er farið í ”Join game”, nafnið á bingóinu fundið ”Flugeldabingó ÍBV 2021” og settur inn kóðinn sem viðkomandi fékk sendan frá okkur. ATH, hver fjölskyldumeðlimur getur notað sitt spjald á sínu snjalltæki en aðeins er hægt að spila með eitt spjald á tæki.
Vinningarnir eru eins og venjulega í formi flugelda frá Björgunarfélag Vestmannaeyja og eru ekki af verri endanum. Vinningum verður keyrt heim til sigurvegara á gamlársdag 31.desember. Flugeldabingó ÍBV hefur lengi verið vinsæll viðburður og stór þáttur hjá mörgum yfir hátíðarnar.
Allar fyrirspurnir beinast til Vilmars Þórs á netfangið, vilmar@ibv.is

Nýjustu fréttir

Segja forsendur útboðs heilsuræktar hafa breyst verulega
ÍBV tekur á móti ÍR
Óvenjulegar eignfærslur og tafir á afhendingu gagna
Opið hús hjá Krabbavörn
Fermingar á næsta leyti
Bent kemur fram á Hljómey!
Skyndihjálparnámskeið hjá Visku um helgina
Útför: Einar Birgir Sigurjónsson
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.