Róleg nótt að baki
20240802 230837
Mikill mannfjöldi er samankominn á Þjóðhátíðinni. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson.

Nóttin var helst til tíðindalítil hjá lögreglunni í Vestmannaeyjum miðað við þann mannfjölda sem nú er í Eyjum. Karl Gauti Hjaltason, lögreglustjóri segir í samtali við Eyjafréttir/Eyjar.net að aðeins einn hafi gist fangageymslur og var það vegna ölvunar. Þá komu upp tvö minniháttar fíkniefnamál.

Hann segir að þrátt fyrir leiðinda veður þá hafi þetta gengið ótrúlega vel fyrir sig. Aðspurður um fjölda þjóðhátíðargesta segir Karl Gauti að það sé gríðarlega fjölmennt. ,,Þetta er ein af stærstu hátíðum hingað til.”  Enn á svo eftir að bætast við því búist er við töluverðum fjölda til Eyja í dag, en í kvöld syngja þjóðhátíðargestir saman í brekkunni í Brekkusöngnum og í kjölfarið verða tendruð 150 blys í dalnum í tilefni af 150 ára afmæli hátíðarinnar.

Í kvöld klukkan 18.00 tekur svo gildi önnur gul veðurviðvörun vegna djúprar lægðar sem stefnir að landinu og á að valda leiðindaveðri um landið allt. Vill Karl Gauti beina því til þjóðhátíðargesta að það sé ekkert lát sé á hvassviðri og bleytu og biður hann gesti um að huga vel að tjöldum sínum fyrir kvöldið.

Uppfært: Í tilkynningu lögreglu segir að undir morgun hafi lögregla hafið leit að Helga Ingimar, tvítugum dreng, sjá færslu fyrr í morgun. Björgunarbáturinn Þór var ræstur út til leitar af sjó.

Lögreglan lýsir eftir Helga

Veðurstofan gefur út fleiri viðvaranir

20240803 Flugeldar Svid
Glæsileg flugeldasýning tók við á miðnætti í nótt. Eyjafréttir/Eyjar.net: Tryggvi Már

Nýjustu fréttir

Hitað upp fyrir leik ÍBV og Hauka
Spurt og svarað: Sæunn frá Miðflokknum
Metþátttaka í The Puffin Run í ár
Álfsnes, kjarnaborun og höfnin
Vestmannaeyjar, eyjan okkar
Dýpkun gengur hægt – betri horfur síðar í vikunni
Spurt og svarað: Arndís María frá Eyjalistanum
Eitt tilboð í Gjábakkakant – samið niður eftir opnun

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.