Rölti um græna vin í hjarta bæjarins
Skógurinn í Löngulág er notalegt útivistarsvæði í hjarta bæjarins. Mynd/skjáskot.

Skógurinn í Löngulág, fyrir ofan Malarvöllinn, er sannkölluð græn vin í hjarta Vestmannaeyjabæjar. Þar hefur trjágróður fengið að dafna og myndað skjólgott og notalegt svæði sem margir bæjarbúar þekkja vel.

Í skipulagsgögnum Vestmannaeyjabæjar kemur fram að Löngulág sé einn gróðursælasti reitur Vestmannaeyja hvað trjágróður varðar. Svæðið hefur verið nýtt til útivistar og gróðurræktar og þar er jafnframt að finna líflegt fuglalíf.

Trjálundurinn í Löngulág hefur orðið til fyrir tilstilli áhugasamra Eyjamanna, fyrirtækja og Skógræktarfélags Vestmannaeyja, sem gróðursett hafa þar tré og hlúð að svæðinu í gegnum tíðina. Halldór B. Halldórsson  rölti um skóginn og fangar í myndbandinu þá sérstöku stemningu sem þar ríkir á fallegum sumardegi.

Í nýjum skipulagsáformum fyrir Malarvöll og Löngulág er gert ráð fyrir að græna svæðið verði áfram sameiginlegt dvalarsvæði bæjarbúa og að skipulag þess verði bætt svo það nýtist enn betur.

Play Video

Nýjustu fréttir

Dreymir um að verða lögreglumaður
Þarf kjark til að fara á karlaráðstefnu?
Hákon hlakkar mest til að læra sund
Trúfesti Guðs rauði þráðurinn í 100 ára sögu
Binni Þór gerir tveggja ára samning við ÍBV
Mikill spenningur fyrir komandi tímabili
Gætu sparað hundruð milljóna ef grjótið reynist vel
Viljayfirlýsing undirrituð um samstarf vegna Eyjaganga
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.