Sænskur leikmaður til ÍBV

Kvennalið ÍBV í handknattleik hefur fengið liðsstyrk fyrir átökin í Olísdeild kvenna. Lina Cardell hefur skrifað undir samning um að leika með liði ÍBV út leiktíðina. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Sävehofs og vefurinn handbolti.is greindi fyrst frá.

Cardell er örvhent og leikur í hægra horni. Hún er 19 ára gömul og hefur leikið 12 U-landsleiki fyrir Svíþjóð. Hún segir í samtali við Facebook-síðu Sävehof að samningurinn við ÍBV sé gerður fyrir milligöngu Birnu Berg Haraldsdóttur núverandi leikmanns ÍBV sem lék um nokkurt skeið með sænska liðinu.

Nýjustu fréttir

Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
KA fylgir ÍBV niður í Lengjudeildina þrátt fyrir stórsigur
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.