Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
Grupeixe og ESBAL kynntu saltfisk og aðrar sjávarafurðir á Conxemar-sýningunni í Vigo á Spáni. Mynd/VSV.

Grupeixe og ESBAL, fyrirtæki Vinnslustöðvarinnar í Portúgal, tóku þátt í sjávarútvegssýningunni Conxemar sem fram fór í Vigo á Spáni í þessari viku. Mikill fjöldi gesta heimsótti bás félaganna þar sem kynntar voru eigin vörur þeirra ásamt afurðum Vinnslustöðvarinnar og tengdra félaga.

Þetta kemur fram á vef Vinnslustöðvarinnar. Sverrir Haraldsson var á sýningunni ásamt starfsfólki portúgölsku félaganna og segir saltfiskafurðir hafa verið í forgrunni.

„Aðaláhersla okkar fyrirtækja hér á þessari sýningu er á saltfiskafurðir en einnig er verið að hitta kaupendur annarra afurða í bæði botnfiski og uppsjávarfiski.“

Vonast eftir meiri stöðugleika

Sverrir segir miklar verðhækkanir hafa orðið undanfarna mánuði í flestum afurðaflokkum, samhliða mikilli hækkun hráefnisverðs.

„Það er okkar von og viðskiptavina að stöðugleiki verði meiri á næstunni en verið hefur.“

Hann segir þó ljóst að áfram verði skortur á flestum mörkuðum. Erfitt sé að spá með mikilli vissu fyrir um þróun afurðaverðs og framleiðslukostnaðar næstu mánuði.

Í frétt Vinnslustöðvarinnar kemur jafnframt fram að fulltrúar VSV, Grupeixe og ESBAL séu afar ánægðir með sýninguna og bás félaganna. Starfsfólki beggja portúgölsku félaganna eru færðar þakkir fyrir góðan undirbúning og frábært starf á sýningunni.

Nýjustu fréttir

SASS vill fresta skattahækkunum og meta áhrifin á Suðurland
Að kveikja neistann – að vekja áhuga og ástríðu barna í námi og skólastarfi  
Eyjaperlur í Eldheimum – myndir
Látinna minnst í allraheilagramessu í Landakirkju
Herjólfur aftur til Landeyjahafnar
ÍBV getur endurheimt annað sætið með sigri á Gróttu
Ásmundur les úr Sögum af Vellinum á Safnahelgi
Hrekkjavökuballið í Alþýðuhúsinu – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.