Samþykktu reglur um rekstrar- og afreksstyrki
ráðhúsið_börn
Ráðhús Vestmannaeyja. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Meðal erinda á fundi bæjarráðs þann 30. júlí sl. voru rekstrar- og afreksstyrkir til aðildarfélaga ÍBV-héraðssambands.

Máli af fundi fjölskyldu- og tómstundaráðs var vísað til bæjarráðs þar sem um var að ræða reglur um styrki til efnilegs íþróttafólks vegna landsliðsverkefna.

Ungt landsliðsfólk heldur launum

Lagt var til að ungt landsliðsfólk haldi launum sé það í sumarvinnu hjá Vestmannaeyjabæ þegar það fer í landsliðsverkefni. Einnig að A-landsliðsfólk yrði mætt með launastyrk vegna fjarveru frá vinnu vegna landsliðsverkefna, sé það starfsfólk sveitarfélagsins. Þá gætu iðkendur sótt um sérstakan ferðastyrk, greiði sérsamband ekki ferðakostnað þeirra við landsliðsferðir erlendis.

Bæjarráð samþykkti reglurnar sem taka gildi afturvirkt frá og með 1. maí sl. og skal gera ráð fyrir kostnaði í fjárhagsáætlunarvinnu næsta árs. Nú er hægt að sækja um styrki og laun skv. reglum þessum í íbúagátt á heimasíðu Vestmannaeyjabæjar.

Bæjarráð skorar á ríkið og ráðherra málaflokksins að styðja betur við afreksstarf á Íslandi og sameiginleg landslið okkar.

Nýjustu fréttir

Eyjar liðins tíma lifna við – 2. þáttur
Vikan í Eyjum: Verklag bæjarins, hafnarmál og menningarlíf
Atli Steinn fór á kostum þegar ÍBV lagði Stjörnuna að velli
Sebastiano Caboto við dýpkun í Vestmannaeyjahöfn – uppfært
Norðurljósin settu svip á hrekkjavökuna í Eyjum
Engin fyrirheit um fjármögnun nýs dráttarbáts
Eyjamenn vilja fylgja eftir góðum útisigri
Grikk eða gott í Eyjum – myndir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.