Sindri Viðarsson - Hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls
Sindri Viðarsson í The Puffin Run.

Í aðdraganda Reykjavíkurmaraþons Íslandsbanka, sem fram fer laugardaginn 22. ágúst, ræða Eyjafréttir við nokkra hlaupara frá Vestmannaeyjum sem taka þátt í ár.

Fyrstur í röðinni er Sindri Viðarsson, sem ætlar að hlaupa 10 km. Hann hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls, sem að þessu sinni styrkir Guðbjörgu Sillu Viðarsdóttur, frænku Sindra.

Nafn? Sindri Viðarsson

Aldur? Ég verð 44 ára núna í desember.

Fjölskylda? Konan mín heitir Þórsteina og saman eigum við þrjú börn Eddu Dögg, Nökkva Dan og Sögu Margréti.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? Fljótlega eftir að ég hætti í fótboltanum í kringum 2010 fór ég að æfa markvisst hlaup.

Uppáhalds vegalengd sem þú hleypur? Mér finnst skemmtilegast að hlaupa styttri vegalengdir og geta þá haldið uppi góðum hraða. Frekar en að hlaupa lengra og þurfa að hægja á sér.

Hvar er skemmtilegast að hlaupa? Mér finnst skemmitlegast að hlaupa utanvegar í grófu landslagi og að mínu mati er hraunið, síðasti parturinn í Puffin Run skemmtilegasti hluti þess hlaups.

Hvenær sólahrings er best að hlaupa? Það skiptir mig ekki öllu máli hvenær dags ég hleyp, aðalmálið er að vera búinn að næra sig vel og líkaminn sé vel “vaknaður”.

Besti hlaupafélaginn? Allir meðlimir Eyjaskokks.

Uppáhalds hlaupaskór og fatnaður? Ég hef alltaf hlaupið mikið í Adidas skóm og er mjög hrifinn af þeim. Síðan keypti ég mér síðasta vetur Asics utanvegar skó sem ég notaði í Puffin Run og ég kann mjög vel við þá.

Hvað er ómissandi á hlaupaæfingu? Bjartsýnin og góða skapið 😉.

Hvernig nærir þú þig kvöldinu áður og morguninn fyrir keppnishlaup? Ég borða bara hefðbundinn mat, held mig bara við það sem ég er vanur að borða og er ekkert að breyta þótt ég sé að fara í hlaup. Passa bara vel að drekka nóg af vatni.

Bestu tímar í 5 km, 10 km og hálfmaraþoni? Hef aldrei hlaupið hálfmaraþon í keppni og það er svo langt síðan ég náði mínum bestu tímum í 5 og 10 km að ég man það ekki nákvæmlega. Það var eitthvað undir 20 mín og 40 mín.

Hvað hleypur þú mikið í hverri viku? Fer þrisvar í viku á hlaupaæfingu og fer svo 3-4 sinnum á Metabolic æfingar. Fyrir mig skiptir miklu máli að taka styrktaræfingar með hlaupunum og reyna að hafa þetta nokkuð fjölbreytt.

Hleypur þú eftir æfingaáætlun? Ég æfi undir styrkri stjórn Friðriks sem er hlaupaþjálfari Eyjaskokks.

Hvaða vegalengd tekur þú í Reykjavíkurmaraþoninu? Í ár ætla ég að fara 10 km.

Ertu með einhver markmið fyrir hlaupið? Já ég er með þau og er alltaf með ákveðin markmið í huga áður en ég fer í keppnishlaup.  Það heldur manni við efnið og drífur áfram þegar í hlaupið er komið.

Hvernig hefur undirbúningurinn gengið? Æfingar hafa gengið nokkuð vel þegar ég hef mætt en það hefur verið aðeins misbrestur á því í sumar. Held samt að ég sé ágætlega undirbúinn fyrir mín markmið.

Ætlar þú að hlaupa fyrir eitthvað góðgerðarfélag? Hvernig hefur það gengið? Ég ætla að hlaupa fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls en sjóðurinn mun að þessu sinni styðja við hana Guðbjörgu Sillu frænku mína sem greindist á síðasta ári með MND taugahrörnunarsjúkdóm. Söfnunin hefur gengið ótrúlega vel og talsvert umfram mínar væntingar og vil ég þakka öllum þeim sem hafa styrkt málefnið kærlega fyrir.

Lýstu þér sem hlauparar í einni setningu? Fer langt á þrautsegjunni 😉.

Hægt er að heita á Sindra með því að smella hér.

Nýjustu fréttir

Skipstjórarnir sáttir við veiðina
Ágústa María kemur til ÍBV á láni frá Val
Telja vatnslögnina ónýta en ætla að ljúka útlagningu
Sindri Viðarsson – Hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls
Úr handboltanum yfir í málaralist
„Þúsund þorskar á færibandinu ……………“
ÍBV fær Stjörnuna í heimsókn í kvöld
Dumbungur skyggði á sólmyrkvann í Eyjum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.