Skákþing Vestmannaeyja hefst 2. febrúar
Skák Lagf 25
Frá Skákþingi Vestmannaeyja í fyrra. Mynd/aðsend.

Skráning keppenda á Skákþing Vestmannaeyja 2025  er hafin en mótið hefst sunnudaginn 2. febrúar nk. Mótið er fram í skákheimili TV að Heiðarvegi 9  og verður teflt á sunnudögum kl. 13.00 og fimmtudögum kl. 19.30.   Umhugsunartími á keppenda á skák verður 60 mínútur  + 30 sek. á hvern leik. Er þetta sömu tímamörk  og undanfarin ár og gefur mótið rétt til alþjóðlegra skákstiga.  Ef fresta þarf  skákum  vegna forfalla verða þær  skákir  á öðrum tíma .   Skákstjóri  verður Sæmundur Einarsson og mun hann veita upplýsingar í síma 611-2284  eða á netfanginu saemi.einars@gmail.com.

Skráningu keppenda lýkur  sunnudaginn 26. janúar og verður þá dregið um töfluröð.  Undanfarin ár hafa keppendur  á Skákþinginu verið 10-12 talsins og tefla allir við alla.     Skákþingið mun standa út febrúar 2025. Núverandi  Skákmeistari Vestmannaeyja  er Benedikt Baldursson og mun hann verja titil sinn.

Að öðru  á vettvangi TV er það að frétta að undirbúningur skákkennslu ungmenna  í húsnæði TV  við Heiðarveg er í fullum gangi. Karl Gauti Hjaltason, fyrrv. lögreglustjóri  í Eyjum  og form. TV  annaðist skákkennsluna að mestu síðasta haust, en  tekur nú sæti á Alþingi í byrjun febrúar  nk. sem einn af þingönnum Suðurkjördæmis.  Unnið er að því að fá annan skákkennara og hefja kennsluna á ný  sem fyrst.

Þá er framundan  27. febrúar til 2. mars nk.   seinnihluti  Íslandsmót skákfélaga 2024-2025  – en TV er með þrjár sveitir á mótinu  Átta  manna  skáksveit í úrvalsdeild,   aðra sex manna sveit í 3ju deild og loks sex manna sveit fjórðu deild. Alls koma um 30 keppendur við sögu á mótinu allt félagar í TV.  Í úrvalsflokki tefla nokkrir  alþjóðlegir skákmeistarar sem hafa gengið til liðs við TV á allra síðustu árum, þsr af tveir danskir  skákmeistarar.  Engu að síður verður þetta þungur róður í keppni við öfluga alþjóðlega skákmeistara  innlenda og erlenda í  hinum fimm sveitunum í efstu deild. . Í 3. og 4. deild eru keppendur TV  ýmist búsettir í Eyjum eða uppi á landi, segir í tilkynningu frá TV.

Nýjustu fréttir

Elís Þór æfði með A-landsliðinu
Treysti sér ekki til að vera heima og horfa á leikinn
Gagnrýna samning bæjarins við rekstraraðila heilsuræktar
Lönduðu fullfermi í Grindavík
Líf og fjör á Suðurlandi: Barnamenningardagar framundan
Tanja er íþróttamaður mánaðarins
Tannverndarvika
Gyllta flóran frá Féló vann Stíl 2026
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.