Skemmtilegasti félagsskapur sem hugsast getur
Karlakórinn hefur glatt margan með öflugum söng og hressilegri framkomu.

Karlakór Vestmannaeyja býður alla karlmenn velkomna í kjötsúpuveislu í Kiwanishúsinu í kvöld, 11. september.

Kjötsúpukvöld KKVE er kjörið tækifærið til að kynna sér starf kórsins og ganga til liðs við einn skemmtilegasta félagsskap sem hugsast getur. Við viljum endilega sjá sem flest ný andlit og hvetjum við karlmenn á öllum aldri til að láta sjá sig og draga jafnvel einn eða tvo félaga með sér til stuðnings. Við erum alltaf að leita að góðum mönnum og stefnum við að öflugu starfi í vetur. Að auki skorum við á óvirka meðlimi að endurnýja kynni sín við starf kórsins. Nú er tækifærið!

Í boði verður geggjuð kjötsúpa, enn betri félagsskapur, „léttar veitingar“ og söngur! Hvað er hægt að biðja um meira á fallegu haustkvöldi?

Fréttatilkynning.

Nýjustu fréttir

Hvert siglir Herjólfur í dag
Efnilegir pílukastarar láta til sín taka
Vestmannaeyjar: Raunverulegt verðmætasköpunar vetur-sumar-vor og haust
Tími til kominn að taka næsta skref
Ákvarðanir fyrir framtíðarkynslóðir
Í dag eru 75 ár frá Glitfaxaslysinu
Hárígræðslur í Tyrklandi 
Húsið of hátt – skipulagi breytt eftir á og nágrannar ósáttir
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.