Skipstjórarnir sáttir við veiðina
DSC 2373
Á sjónum. Eyjafréttir/Eyjar.net: Óskar Pétur Friðriksson

Vestmannaeyjaskipin Vestmannaey VE og Bergey VE landa bæði góðum afla í dag. Vestmannaey landar 65 tonnum af karfa í Grindavík en Bergey landar fullfermi í Vestmannaeyjum, aðallega ýsu, að því er segir í frétt á heimasíðu Síldarvinnslunnar.

Birgir Þór Sverrisson, skipstjóri á Vestmannaey, segir túrinn hafa gengið vel.

„Þetta er mest gullkarfi sem við erum með. Aflinn fékkst að mestu í Skerjadýpinu og á Sparisjóðnum en við enduðum síðan á Eldeyjarbankanum. Þetta er þriðji túrinn hjá okkur eftir sumarstopp en við lönduðum fullfermi af ýsu í Eyjum á sunnudaginn. Ýsuna fengum við á Brekableiðunni. Veiðin eftir að sumarstoppinu lauk hefur verið býsna góð og menn hér um borð eru bara sáttir,“ segir Birgir Þór.

Jón Valgeirsson, skipstjóri á Bergey, lætur einnig vel af veiðunum.

„Við vorum að koma úr fyrsta túrnum okkar eftir sumarstopp og hann gekk býsna vel. Við fórum út á sunnudag og veiddum fyrst ýsu á Brekableiðunni. Síðan var farið á Pétursey og Vík þar sem fékkst ýsa í bland við þorsk. Þetta gekk alveg ágætlega og veðrið var gott megnið af túrnum en við fengum smávegis kaldaskít í lokin,“ segir Jón.

Bæði skip halda fljótlega aftur til veiða að löndun lokinni.

Nýjustu fréttir

Bæjarbúar hvattir til að tryggja lausamuni
Endurskoða þarf hlutverk ríkisfjölmiðilsins frá grunni
ÍBV B mætir Herði í Powerade bikarnum
Treyjudagurinn haldinn í fyrsta sinn
Skammt í farþegametið í komu skemmtiferðaskipa
Samfylkingin stærst en Sjálfstæðisflokkurinn sækir í sig veðrið
Stór ágústmánuður að baki hjá Herjólfi
Sænski sendiherrann genginn til liðs við Taflfélag Vestmannaeyja
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.