Skulu upplýsa um launakjör framkvæmdastjóra
hog_herj_21
Hörður Orri Grettisson fráfarandi framkvæmdastjóri Herjólfs ohf. Hann lætur af störfum hjá félaginu í lok árs.

Í lok september kvað úrskurðarnefnd um upplýsingamál upp úrskurð í máli er varðar ákvörðun Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. um að synja beiðni um aðgang að ráðningarsamningum fram­kvæmda­stjóra félagsins og út­gerðarstjóra þess.

Beiðnin var lögð fram 4. mars 2024 og henni synjað 16. apríl sama ár, með þeim rökum að gögn­in féllu undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og fél­aginu væri heimilt að takmarka aðgang kæranda að þeim. Í kæru er rakið að um sé að ræða tvo æðstu emb­ætt­is­menn félags sem sé alfarið í eigu Vestmannaeyjabæjar. Til samanburðar gefi sveit­ar­félagið upp laun og samninga sinna æðstu manna.

Framkvæmdastjóri telst til æðstu stjórnenda en ekki útgerðarstjóri

Í máli þessu er deilt um rétt kæranda til aðgangs að ráðningarsamningum framkvæmdastjóra og út­gerð­ar­stjóra Vestmannaeyjaferjunnar Herjólfs ohf. Ákvörðun félagsins er byggð á því að gögnin falli undir 1. málsl. 1. mgr. 7. gr. upplýsingalaga, nr. 140/2012, og verði ekki afhent. Ákvæðið hljóð­ar svo:

Réttur almennings til aðgangs að gögnum um málefni starfsmanna sem starfa hjá aðilum sem lög þessi taka til skv. 2. gr. tekur ekki til gagna í málum sem varða umsóknir um starf, framgang í starfi eða starfssambandið að öðru leyti.

Fram kemur í niðurstöðukafla að úrskurðurinn staðfesti að þó svo að fyrirtækið geti takmarkað aðgang að ráðningarsamningum samkvæmt lögum, eigi opinberar stofnanir að veita upplýsingar um launakjör æðstu stjórnenda. Framkvæmdastjóri telst til æðstu stjórnenda, og því hafi almenningur rétt á að vita laun hans.

Telur úrskurðarnefndin að fyrirtækinu sé skylt að afhenda kæranda þann hluta ráðningarsamningsins sem hefur að geyma upplýsingar um launakjör framkvæmda­stjóra félagsins. Að öðru leyti verður ákvörðun félagsins að hafna beiðni kæranda staðfest.

Útgerðarstjóri telst hins vegar ekki æðsti stjórnandi samkvæmt lögunum, þannig að laun hans þarf ekki að gera opinber.

Skuli veita kæranda, aðgang að upplýsingum

Í úrskurðarorðum nefndarinnar segir að Vestmannaeyjaferjan Herjólfur ohf. skuli veita kæranda, aðgang að launaupplýsingum framkvæmdastjóra en getur haldið trúnað um laun útgerðarstjóra.

Úrskurðinn í heild sinni má lesa hér.

Nýjustu fréttir

Gul veðurviðvörun á Suðurlandi
Ný bók Sigurgeirs fangar mál, menningu og sögu Vestmannaeyja 
Óli á Stapa leiðir gesti um fjölskyldusýningu í Svölukoti
Erna Sólveig – Hjálparstarf í Afríku og nám í Svíþjóð
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Gabríela Máney
Blessuð sé minning starfshópsins
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Bjarki Þór
Hvað vita börnin um eldgosið á Heimaey: Haraldur Dúi

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.