Stærri en Íslendingabók
Oddur. Ættfræði. ORG.

Oddur og samtarfsfólk hans á ORG ættfræðiþjónustunnar hefur unnið stórvirki á sviði ættfræði. Hefur þeim tekist að tengja saman rétt tæplega níu hundruð þúsund Íslendinga og er gagnagrunnurinn orðinn stærri en Íslendingabók. Og það er ekki komið að tómum kofanum þegar rætt er við Odd sem tekst allur á loft þegar hann byrjar að rekja ættir fólks saman 

Hann segir ORG í nánu samstarfi við Persónuvernd og hafi gert frá upphafi. „Þetta samstarf er okkur mikils virði og nú er dómsmálaráðuneyti að vinna að gerð laga um ættfræði. Það mun styrkja okkur og efla,“ segir Oddur og er þakklátur Eyjamönnum fyrir hlýjar móttökur en hann ferðast talsvert um landið til að heyja sér nýja samstarfsaðila í þrotlausri vinnu sinni við að kynna og stækka enn frekar ættfræðigrunn sinn sem nú þegar er orðinn stærri öllum öðrum ættfræðigrunnum hér á landi. Oddur sagðist að lokum hvergi vera hættur þótt kominn sé yfir áttrætt og fagnaði því að frændur sínir í Eyjum væru nú orðnir öflugir samstarfsaðilar sínir. 

Á Myndinni eru: Ingibjörg, Garðar, Kári, Oddur og Unnur við höfnina í Eyjum. 

Nánari umfjöllun í nýjasta tölublaði Eyjafrétta, útgefið þann 22. júní. 

 

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.