Á fundi stofnfjáreigenda í Sparisjóði Vestmannaeyja á mánudagskvöld, var samþykkt að auka stofnfé sjóðsins í 1004 milljónir króna, með tilkomu Seðlabankans, Vinnslustöðvarinnar, Vestmannaeyjabæjar og Lífeyrissjóðs Vestmannaeyja. Jafnframt var samþykkt að lækka eldra stofnfé um 72%. Seðlabankinn er í dag stærsti stofnfjáreigandi Sparisjóðs Vestmannaeyja með 55%.