Svipmyndir frá líflegum laugardegi á Goslokahátíð
Þátttakendur í Goslokahlaupi Ísfélagsins skemmtu sér vel þegar litríkum dufti var kastað yfir hlauparana. Viðburðurinn var einn af mörgum á fjölbreyttri dagskrá Goslokahátíðar á laugardag. Ljósmynd/Halldór B. Halldórsson

Goslokahátíðin hélt áfram af fullum krafti í Vestmannaeyjum í dag þar sem fjölbreytt dagskrá bauð upp á afþreyingu fyrir alla aldurshópa. Halldór B. Halldórsson var á ferð um bæinn með myndavélina og tók saman þriggja mínútna myndband sem fangar stemninguna á deginum.

Meðal annars leit hann við á dorgveiðikeppni SJÓVE á Básaskersbryggju, heimsótti Björnis brunabangsa á slökkviliðsstöðinni og fylgdist með Goslokahlaupi Ísfélagsins, auk þess að fanga mannlífið og hátíðarstemninguna víðs vegar um bæinn. Sjón er sögu ríkari.

Play Video

Nýjustu fréttir

Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Hraunbúðarmálið: Segja að tryggja verði réttaröryggi sjúkraliða
Leikskrá knattspyrnudeildar ÍBV komin út
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.