Krónan eykur þjónustu í Vestmannaeyjum

Vestmannaeyingar geta frá og með deginum í dag pantað matinn sinn heim í Snjallverslun Krónunnar. Opnað verður fyrir pantanir í Vestmannaeyjum í dag, miðvikudag og verður boðið upp á heimsendingu alla virka daga. Mikil eftirspurn hefur verið eftir þjónustunni í bænum og býður Krónan nú þegar upp á heimsendingar á Suðurlandi, Suðurnesjum og Norðurlandi eystra. […]

17 fjölskyldur í Vestmannaeyjum fá matarúttekt frá Krónunni fyrir jólin

Krónan hefur afhent Styrktarsjóði Landakirkju 17 gjafakort sem safnað var fyrir í jólasöfnun Krónunnar á aðventunni. Þá bauðst viðskiptavinum að styrkja hjálparsamtök sem sjá um matarúthlutanir í sínu nærsamfélagi í aðdraganda jóla og jafnaði Krónan þá upphæð á móti. Viðskiptavinir Krónunnar í Vestmannaeyjum, ásamt Krónunni söfnuðu alls 340 þúsund krónum en samtals söfnuðust 12 milljónir […]

Söfnuðu 300 þúsund krónum fyrir matargjafir í Vestmannaeyjum

Krónan afhenti hjálparsamtökum rúmlega 450 gjafakort á dögunum. Gjafakortin eru afrakstur jólasöfnunar sem fram fór í verslunum Krónunnar á aðventunni, þar sem viðskiptavinum bauðst að styrkja hjálparsamtök í sínu nærsamfélagi sem sjá um matarúthlutanir í aðdraganda jóla. Viðskiptavinir söfnuðu rúmlega 4,6 milljónum króna og lagði Krónan 5,4 milljón krónur á móti þeirri upphæð. Alls söfnuðust […]

Gott að versla í Vestmannaeyjum – Krónan

Jólahlaðborðið vinsælt Ólafur Björgvin Jóhannesson verslunarstjóri hjá Krónunni var önnum kafinn þegar við náðum í hann. „Þetta er sá árstími sem það er sem mest að gera hjá okkur og verslunin komin í hátíðargír núna í kringum fyrsta í aðventu. Við höfum sett upp okkar vinsæla og glæsilega jólahlaðborð sem fólk getur haft heima hjá […]

Skannað og skundað í Krónunni í Eyjum

„Ég er virkilega ánægður að geta nú boðið viðskiptavinum Sannað og skundað-þjónustuna hér í Eyjum,“ segir Ólafur Björgvin Jóhannesson, verslunarstjóri Krónunnar. Frá og með 13. október verður í boði að greiða með appinu í versluninni.   „Varan beint ofan í pokann og út. Hér verður starfsmaður hjá okkur sem býður viðskiptavinum okkar að prófa og […]

Sjálfsafgreiðslukassa í Krónunni vel tekið 

Eyjamenn fengu þrjá sjálfsafgreiðslukassa og eitt afgreiðslupúlt í verslun Krónunnar í byrjun desember síðastliðnum og hefur nýting á kössunum verið vonum framar. Í dag fer um helmingur af öllum innkaupum í gegnum sjálfsafgreiðslukassana á móti beltakössum.  Að sögn Ólafs Björgvins Jóhannessonar, verslunarstjóra Krónunnar í Vestmannaeyjum, hafa viðskiptavinir verslunarinnar tekið lausninni afar vel þótt einhverjar efasemdir […]

Krónan þakkar fyrir sig með afslætti   

Krónan býður viðskiptavinum sínum upp á 5 prósent afslátt af öllum vörum í verslunum sínum á morgun, laugardaginn 22. janúar. Tilefnið er að fimmta árið í röð eru viðskiptavinir Krónunnar þeir ánægðustu á matvörumarkaði, samkvæmt niðurstöðum Íslensku ánægjuvogarinnar sem kynntar voru fyrr í dag. Krónan hlaut hæstu einkunn meðal verslana á matvörumarkaði með marktækum mun […]

Sundfélag ÍBV og Listasmiðja náttúrunnar fengu samfélagsstyrk

Krónan hefur nú úthlutað um sjö milljónum króna til 25 verkefna í formi samfélagsstyrkja til verkefna sem hvetja til hollustu og hreyfingar barna og/eða verkefna sem hafa jákvæð áhrif á uppbyggingu í nærsamfélagi Krónunnar. Í ár bárust 111 umsóknir þar sem 25 þeirra hlutu styrk. Verkefni sem fengu styrk á landsbyggðinni voru 17 talsins og […]

Grímuskylda afnumin í Krónunni

Frá og með deginum í dag mun Krón­an af­nema grímu­skyldu í versl­un­um sín­um, en hún var sett á í lok júlí­mánaðar. Frá þessu grein­ir fyr­ir­tækið í til­kynn­ingu á facebook síðu sinni. Þar kemur fram að sem fyrr eru viðskipta­vin­ir og starfs­fólk beðin um að huga ávallt að gildandi fjarlægðartakmörkum, sem nú eru 1 metri, og […]

Krónan hættir með plastpoka

Í maí árið 2019 var frumvarp umhverfisráðherra samþykkt með löggjöf sem bannar sölu plastpoka í verslunum frá 1. janúar 2021. Krónan hóf strax undirbúning og nú er að klárast upplag af plastpokum og verða ekki fleiri pantaðir. Í verslunum Krónunnar eru fjölnota burðarpokar og pappapokar til sölu við afgreiðslukassa. Viðskiptavini eru hvattir til að nota […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.