Teflt á tæpasta vað með vatn og rafmagn

„Við þurfum aðra vatnsleiðslu, nýjan rafstreng milli lands og Eyja, meira varaafl og það er nauðsynlegt að Landsnet tryggi okkur öruggari flutning á rafmagni uppi á landi,“ segir Ívar Atlason, svæðisstjóri vatnssviðs hjá HS-Veitum í Vestmannaeyjum. Hann leggur áherslu á þá staðreynd að vatnsleiðslan sem lögð var milli lands og Eyja árið 2008 er sú eina sem nú er í rekstri. „Leiðslurnar sem lagðar voru 1968 og 1971 eru úti. Margt verið gert til að reyna að koma þeim í gagnið en án árangurs. Frændur mínir frá Gjábakka, Addi og Gunni Ella Pé, kafarar og þeirra menn hafa reynt  en það hefur ekki gengið. Leiðslurnar hafa verið í sjó í meira en fimmtíu ár og þeirra tími er einfaldlega kominn. Leiðslan frá 2008 er mjög öflug og flott en það er öruggara að hafa tvær. Leiðslan er orðin fjórtán ára gömul og tíminn er fljótur að líða.“

Ívar segir mörg og snúin verkefni framundan til að tryggja næga orku og vatn til Vestmannaeyja. Staðan eins og hún er í dag kalli á aðra vatnsleiðslu og nú vinna bæjaryfirvöld og HS-Veitur að fjármögnun nýrrar leiðslu.  „Málið er að það er enginn virðisaukaskattur á vatnsveitur og þess vegna getum við ekki nýtt okkur innskattinn. Leiðsla sem kostar milljarð króna kostar okkur því 1250 milljónir. Í gangi eru viðræður við hið opinbera um  að fella vaskinn niður og við þurfum einhverja meðgjöf til að ráða við þetta. Sjálf leiðslan kostar 700 til 800 milljónir og við það bætist flutningur, lagning og tenging. Þetta tekur allt  mikinn tíma og hann höfum við ekki eins og staðan er í dag,“ segir Ívar.

Sjá nánar í Eyjafréttum.

Nýjustu fréttir

ÞESAL – Partýljón, teiknimyndir, djamm og djús
Lúðrasveitir sameinast með stórstjörnum í Hörpu
Kvennalið ÍBV semur við markmann frá Kanada-Guyana
Tap hjá Arnari og íslenska landsliðinu gegn Færeyjum
Engin lognmolla í nýju starfi
Samgöngur við Vestmannaeyjar – framtíðarsýn eða bráðabirgðalausnir?
Atli Steinn Arnarson semur við ÍBV
World Class mun rísa samhliða búningsklefunum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.