Tekist á um listaverkið á fundi skipulagsráðs
DSC 1200
Gengið á Eldfell.

Listaverk í tilefni 50 ára goslokaafmælis var tekið fyrir á síðasta fundi umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja. Fundað var á mánudaginn sl.

Á fundinum var lögð fram að lokinni kynningu á vinnslustigi tillaga að breytingu á aðalskipulagi Vestmannaeyja 2015-2035 vegna listaverks Ólafs Elíassonar í tilefni 50 ára goslokaafmælis Heimaeyjargossins ásamt umhverfisskýrslu áætlunar og nýtt deiliskipulag fyrir Eldfell.

Minnihlutinn greiddi atkvæði gegn tillögunni

Fram kemur í fundargerðinni að fulltrúar Vestmannaeyjabæjar hafi fundað með fulltrúum Stúdíó Ólafs Elíassonar þar sem fram kom að þessir aðilar munu á næstu vikum halda kynningarfund fyrir bæjarbúa. Umsagnir vegna aðalskipulagbreytingar og/eða deiliskipulags og umhverfismatsskýrslu bárust frá sex umsagnaraðilum.

Í niðurstöðu segir að ráðið samþykki fyrir sitt leyti að auglýsa tillögu að breyttu aðalskipulagi skv. skipulagslögum og tillögu að nýju deiliskipulagi. Erindið var samþykkt með þremur atkvæðum E- og H-lista gegn tveimur atkvæðum D-lista.

Gera alvarlegar athugasemdir

Fram kemur í bókun Jarls Sigurgeirssonar og Margrétar Rósar Ingólfsdóttur, fulltrúa D-listans að þau geri alvarlegar athugasemdir við það að núverandi meirihluti keyri þetta mál áfram án þess að vita heildarkostnað framkvæmdanna né endanlegt útlit minnisvarðans. Þá eru enn á ný gerðar athugasemdir við að svo mikið inngrip í náttúru Vestmannaeyja sé ekki kynnt bæjarbúum með betri hætti.

Sannfærð um að umrætt listaverk verði bænum til sóma

Í kjölfarið bókuðu þær Jóna Sigríður Guðmundsdóttir, Drífa Þöll Arnardóttir og Bryndís Gísladóttir, fulltrúar  E- og H- lista. Þar segir að eins og fram kemur í innbókun mun listamaðurinn, starfsfólk hans og fulltrúar frá Landslagi kynna á næstu vikum bæjarbúum þetta metnaðarfulla verkefni.

„Umhverfis- og skipulagsráð hefur það hlutverk að vinna að aðal- og deiliskipulagi, en ekki að því sem snýr að kostnaði við verkefnið eða aðrar ákvarðanir varðandi verkið. Eðlilegt er að bæjarfulltrúar ræði það í bæjarstjórn og óski eftir því að málið sé tekið þar fyrir og munu fulltrúar meirihlutans óska eftir því fyrir næsta fund bæjarstjórnar. Það er sorglegt að fulltrúar minnihlutans í ráðinu skuli enn halda því fram að fyrirhugaður göngustígur feli í sér óafturkræfar breytingar í landslaginu. Fulltrúar minnihlutans vita betur, eða ættu að gera það, því gögnin frá listamanninum og landslagsarkitektastofunni Landslagi hafa legið fyrir í á annað ár og gera ráð fyrir að allt sem gert verður á Eldfelli verði afturkræft. Meirihluti E- og H- lista er sannfærður um að umrætt listaverk verði bænum til sóma og fagna því að nú hillir undir að hafist verði handa um þetta sögulega verkefni,” segir í bókun meirihlutans.

Fráleitt að halda því fram að kjörnir fulltrúar í ráðum og nefndum eigi ekki að huga að kostnaði við framkvæmdir

„Það er fráleitt að halda því fram að kjörnir fulltrúar í ráðum og nefndum eigi ekki að huga að kostnaði við framkvæmdir. Fulltrúar D-lista eru þeirrar skoðunar að fyrirhugaðar framkvæmdir séu óafturkræfar í viðkvæmu ósnortnu landslagi Eldfells. Þrátt fyrir yfirlýsingar um annað. Slíkt staðfestir m.a. umsögn Náttúrufræðistofnunar Íslands,” segir í bókun minnihluta umhverfis- og skipulagsráðs.

Nýjustu fréttir

Stefnir í spennandi prófkjör hjá Sjálfstæðismönnum
Vonir vakna hjá TV á Íslandsmóti skákfélaga
Ekkert siglt í dag
Þóra Guðný og Svenni um bygginarframkvæmdina  
Gular viðvaranir víðast hvar
Ófært til lands – uppfært
Gyllta flóran keppir fyrir hönd Féló
Bíða enn eftir alvöru vertíðarstemmningu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.