Fyrir fundi bæjarráðs í vikunni lá fyrir minnisblað um kostnað Vestmannaeyjabæjar vegna �?rettándahátíðar sem haldin var nýliðna helgi. �?ar kemur fram að kostnaður Vestmannaeyjabæjar vegna hátíðarhaldana hafi verið 2.418.666 kr.
Í bókun segir að bæjarráð þakki þeim sem að komu og þá sérstaklega ÍBV íþróttafélagi sem á veg og vanda að hinni einu sönnu þrettándagöngu. Hátíðin tókst að venju vel og ljóst að í þrettándanum eiga Vestmannaeyingar hátíð sem vart á sér líkindi.