�?átt­töku­met í Reykja­vík­ur­m­araþon­inu
Rúm­lega 15 þúsund tóku þátt í Reykja­vík­ur­m­araþoni Íslands­banka 2016 sem í ár fer fram í 33. sinn. �?egar skrán­ing­ar­hátíð hlaups­ins lauk í Laug­ar­dals­höll í gær höfðu þannig 15.135 skráð sig til þátt­töku. mbl.is greindi frá
Sam­tals eru 1.568 skráðir til þátt­töku í heilu maraþoni, 2.920 í hálft maraþon, 147 í boðhlaup, 6.654 í 10 kíló­metra, 2.129 í 3 kíló­metra og 717 í krakkam­araþon.
�?átt­töku­met hef­ur þegar verið slegið í maraþoni og hálfu maraþoni sam­kvæmt frétta­til­kynn­ingu. Rúm­lega 4.000 er­lend­ir gest­ir frá 79 lönd­um eru skráðir til þátt­töku og hafa aldrei verið fleiri.
�?á geng­ur áheita­söfn­un Reykja­vík­ur­m­araþons Íslands­banka á hlaupa­styrk­ur.is mjög vel. Heild­ar­upp­hæð safnaðra áheita nálg­ast 90 millj­ón­ir sem er nýtt met í áheita­söfn­un hlaups­ins. Gamla metið var sett árið 2014 þegar 85,6 millj­ón­ir söfnuðust. Áheita­söfn­un­in verður opin til miðnætt­is á mánu­dag.

Nýjustu fréttir

Mikilvægasta skipið
Tilnefnt í faghóp vegna nýs leikskóla í Löngulág
Ábending frá Herjólfi
Appelsínugular viðvaranir gefnar út
Brýn þörf á úrbótum í Landeyjahöfn – tillögur væntanlegar í vor
Díana Dögg og Andrea deildarmeistarar í Þýskalandi
Gleði og góð mæting á páskaeggjaleitinni – myndir
Viðvörun fyrir allt landið á annan í páskum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.