Þrettán framúrskarandi í Vestmannaeyjum

Í 13 ár hefur Creditinfo unnið greiningu á rekstri íslenskra fyrirtækja og veitt Framúrskarandi fyrirtækjum viðurkenningu fyrir árangurinn. Framúrskarandi fyrirtæki eiga það sameiginlegt að vera stöðug fyrirtæki sem byggja rekstur sinn á sterkum stoðum og efla hag allra. Framúrskarandi fyrirtæki í sem skráð eru í Vestmannaeyjum eru alls 13 í ár og hefur fjölgað um þrjú frá síðasta ári. Þau eru: Einsi Kaldi Veisluþjónusta ehf, Frár ehf, Skipalyftan ehf, Miðstöðin Vestmannaeyjum ehf, Fiskmarkaður Vestmannaeyja hf, Ós ehf, Bergur-Huginn ehf, Bylgja VE 75 ehf, Narfi ehf, Huginn ehf, Ísfélag hf, Kvika ehf útgerð og Vinnslustöðin hf.

Til þess að teljast framúrskarandi þurfa fyrirtækin að uppfylla ströng skilyrði sem eru: fyrirtækið er í lánshæfisflokki 1-3, ársreikningi skal skilað lögum, fyrirtækið er virkt skv. skilgreiningu Creditinfo, Rekstrartekjur að lágmarki 55 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 50 milljónir króna 2021 og 2020, fyrirtæki með rekstrartekjur yfir 5 milljarða króna þurfa að fylla út spurningalista um sjálfbærni, framkvæmdarstjóri skráður í fyrirtækjaskrá RSK, rekstrarhagnaður (EBIT) > 0, jákvæð ársniðurstaða reikningsárin 2020-2022, eiginfjárhlutfall a.m.k. 20% reikningsárin 2020-2022 og eignir að minnsta kosti 110 milljónir króna reikningsárið 2022 og a.m.k. 100 milljónir króna 2021 og 2020.

Nýjustu fréttir

Elmar áfram hjá Nordhorn-Lingen
Róbert hjá ÍBV næstu tvö árin
Framkvæmdir langt komnar í Íþróttamiðstöðinni
Skákþing Vestmannaeyja: Úrslitin ráðast í síðustu umferðunum
Yfir 90% íbúa ánægðir
Bríet kemur fram á Hljómey
Sæunn Magnúsdóttir gengur til liðs við Miðflokkinn
Framkvæmdir hafnar við Áshamar 77  
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.