Tilkynning frá aðgerðastjórn - 6 ný smit í gær

Í dag er fjöldi þeirra sem greinst hafa með staðfest smit í Vestmannaeyjum orðinn 47. Þannig bættust 6 smitaðir í hópinn seint í gærkvöldi en af þeim voru 3 þegar í sóttkví. Fjöldi einstaklinga í sóttkví er orðinn 554. Verulega hefur fækkað í hópi þeirra sem eru að koma erlendis frá og frá áhættusvæðum og fara í 14 daga sóttkví við komuna til landsins. Það skýrist að sjálfsögðu af fækkun ferðalaga.

Minnt er á mikilvægi þess að fylgja leiðbeiningum um einangrun og sóttkví. Gætum að eigin smitvörnum. Við erum öll almannavarnir.

Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

Sunnudagsmorgunn með alþjóðlegum blæ
Um 8000 farþegar með tíu skemmtiferðaskipum
Tvö skemmtiferðaskip í blíðunni í Vestmannaeyjum
Fyrstu spár lofa góðu fyrir Þjóðhátíð
Skiptu 3.000 tonnum af makríl fyrir 1.400 tonn af þorski
Draumurinn um bikarúrslit hjá ÍBV úti – Tap gegn Þrótti R. á útivelli
Eyjamenn vilja geta keypt Laxey-lax
Vestmannaeyskt námsefni nú fáanlegt til útláns
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.