Tilkynning frá aðgerðastjórn - ellefu ný staðfest smit í Vestmannaeyjum

Rannsóknir á sýnum vegna COVID-19 sem lokið var í kvöld hafa leitt í ljós að 11 til viðbótar eru með staðfest smit í Vestmannaeyjum. Af þeim 11 sem eru nýgreindir voru 6 þegar í sóttkví. Heildarfjöldi smitaðra í Vestmannaeyjum er því orðinn 41 talsins. Smitrakningum er ekki lokið vegna þessara aðila. Við fjölda einstaklinga í sóttkví bætast þeir sem greindust í gærkvöldi þar sem smitrakningu er lokið vegna þeirra. Fjöldi þeirra sem eru í sóttkví er samtals 487 talsins.

Mikilvægt er að fólk gæti að eigin sóttvörnum og fari að leiðbeiningum um sóttkví og einangrun. Reynum öll að haga okkur í samræmi við samkomubann og gæta að fjarlægðarmörkum.

Gangi ykkur vel.
Aðgerðastjórn

Nýjustu fréttir

Fjölbreytt fjögurra daga menningarveisla
Vikan í Eyjum: Fjármál bæjarins, brons og besta lundasumarið
„Mun betra að gera þetta með skipulögðum hætti“
Besta varpsumar lundans frá upphafi mælinga
Kvennalið ÍBV gerði upp knattspyrnusumarið í gær
Hrekkjavökuföndur á bókasafninu – myndasyrpa
Nóg að gera í saltfisksölunni
Frumkvæði Eyjamanna í heiðri haft
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.