Tveir sólmyrkvar með 72 ára millibili
Fylgdist með sólmyrkvanum frá nánast sama stað og árið 1954 – Sá fyrri situr mun fastar í minningunni – Fuglunum við Gvendarhús fækkar óðum
Fólk safnaðist saman við suðurströnd Heimaeyjar í von um að sjá sólmyrkvann. Þykk ský og þoka byrgðu sýn, en greinilega dimmdi yfir Eyjum þegar myrkvinn náði hámarki. Eyjafréttir/Eyjar.net: TMS

Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi, oft kenndur við Þorlaugargerði þar skammt frá, hefur nú upplifað tvo mikla sólmyrkva í Vestmannaeyjum með 72 ára millibili. Sá fyrri, almyrkvinn árið 1954, er honum þó mun eftirminnilegri. Þá var bjartviðri í Eyjum og sólin hvarf með öllu um stund. Í gær var hins vegar dumbungur yfir Eyjum og áhrifin því allt önnur.

„Var að enda að fylgjast með sólmyrkva í annað sinn á ævinni; sá fyrri var fyrir 72 árum og var öllu eftirminnilegri. Þá slokknaði á sólinni en í þetta sinn dimmdi bara dálítið. Ekki saman að líkja og þar spilar veðrið sinn stóra þátt,“ segir Sigurgeir í Facebook-færslu.

Sigurgeir er fæddur 26. júní 1942 og var því nýorðinn 12 ára þegar almyrkvinn varð 30. júní 1954. Munurinn á upplifuninni var mikill. Fyrir 72 árum var bjartviðri í Eyjum en í gær var þungbúið og sólin falin á bak við ský.

„Nú horfði ég á þessa tvo myrkva frá nánast sama stað, kannski 20 metrar á milli. En jafn minnisstæður og sá fyrri var, þá skilur þessi lítið eftir og ég sá hvorki dýr né fugla taka á sig náðir eins og var hið fyrra sinnið. Þetta skilur ekki margt eftir í minningunni,“ segir Sigurgeir.

 

Sigurgeir Jónsson í Gvendarhúsi ásamt Önnu Rós Hallgrímsdóttur, skólastjóra GRV, þegar bókin Vísnagátur úr Vestmannaeyjum var kynnt á Goslokahátíðinni í sumar. Bókin er sú 15. sem kemur út eftir Sigurgeir og hefur að geyma um 150 vísnagátur, flestar með sterka tengingu við Vestmannaeyjar.

 

Fuglarnir tínast burt

Sigurgeir segir reglulega frá fuglalífinu í kringum Gvendarhús og sólmyrkvinn varð honum einnig tilefni til að líta yfir hópinn. Haustið nálgast og ýmsir sumargestir eru þegar farnir að tygja sig til brottfarar.

„Og nú fækkar þeim óðum, blessuðum fuglunum hér. Stelka og hrossagauka hef ég ekki séð um talsverða hríð, þeir eru sjálfsagt farnir suðureftir, og tjöldunum fækkar dag frá degi. Það eru aðeins örfáir fuglar sem mæta orðið í mat, en í gærkvöldi var reyndar haldin dýrleg veisla á blettinum.“

Á matseðlinum var fiskur frá Vöruhúsinu og segir Sigurgeir að fiðruðu gestirnir hafi kunnað vel að meta kræsingarnar.

„Voru ekki lengi að sporðrenna afganginum sem ég setti út á blett. En væntanlega fara þeir að kveðja á næstunni. Ég reikna nú ekki með að þeir taki fiskmetið hér og brauðmolana fram yfir strandlífið í Skotlandi, auk þess sem þar er talsvert rólegra veðurfar yfir vetrarmánuðina.“

Sigurgeir á því von á að kveðjustundin sé skammt undan.

„Ég á von á að þeir kveðji mig á næstu dögum. En dúfurnar verða eftir og gott að vita af þeim í nágrenninu,“ segir Sigurgeir að endingu.

 

 

 

Nýjustu fréttir

Tveir sólmyrkvar með 72 ára millibili
Gummi hennar Sædísar
Skipstjórarnir sáttir við veiðina
Ágústa María kemur til ÍBV á láni frá Val
Telja vatnslögnina ónýta en ætla að ljúka útlagningu
Sindri Viðarsson – Hleypur fyrir Minningarsjóð Gunnars Karls
Úr handboltanum yfir í málaralist
„Þúsund þorskar á færibandinu ……………“
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.