Umsóknafrestur fyrir Uppbyggingarsjóðs Suðurlands rennur út í dag
Mikið hefur verið byggt í Vestmannaeyjum á síðustu árum og skortur á byggingalóðum.

Opið er fyrir umsóknir í haustúthlutun Uppbyggingarsjóðs Suðurlands árið 2022. Sjóðurinn hefur það hlutverk að veita verkefnastyrki á sviði atvinnuþróunar og nýsköpunar og menningar á Suðurlandi. Í flokki atvinnuþróunar og nýsköpunar eru það atvinnuskapandi og/eða framleiðniaukandi verkefni sem eiga kost á stuðningi ásamt nýsköpunarverkefnum sem efla fjölbreytileyka atvinnulífs. Í flokki menningar er markmið að verkefni efli menningarstarfsemi og listsköpun á Suðurlandi.

Uppbyggingarsjóður Suðurlands byggir á Sóknaráætlun Suðurlands 2020-2024. Umsækjendum er því bent á að kynna sér vel úthlutunarreglur sjóðsins, áherslur, markmið og mat á umsóknum sem eru aðgengilegar hér.

Við bendum á ráðgjafasíðu SASS með leiðbeiningum um umsóknarskrif og mótun verkefna.

Allar umsóknir þurfa að berast rafrænt í gegnum umsóknarvef sjóðsins. Umsækjandi þarf að skrá sig inn á umsóknarformið með íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Ef sótt er um í nafni lögaðila s.s. fyrirtækis, stofnunnar eða félagasamtaka þarf viðkomandi lögaðili að skrá sig inn með íslykli eða rafrænum skilríkjum þess lögaðila en ekki einka aðgangi verkefnastjóra. Athugið að ekki er hægt að breyta kennitölu og nafni umsækjanda eftir að umsókn hefur verið stofnuð. 

Umsækjendur eru hvattir til að hafa samband við ráðgjafa á vegum SASS og fá aðstoð og leiðbeiningar við gerð umsókna. Hægt er að fá upplýsingar um ráðgjöfina á vefsíðu SASS, eða bóka tíma í ráðgjöf hér

Umsóknir skulu berast fyrir kl. 16.00 þann 4. október 2022.

Nýjustu fréttir

Myndband: Athafnasvæðin austur á Heimaey úr lofti
Jóhann Ingi tekur sæti Sæunnar til áramóta
Vaxandi lestur og fleiri áskrifendur hjá Eyjafréttum
Tölum um heilabilun – fræðsla í Vestmannaeyjum
Starfshópur mótar nýja ferjuáætlun
Haustið farið af stað hjá Fimleikafélaginu Rán
Ægisgata 2 sett aftur á sölu
Milena fer á æfingamót í Portúgal með u-17 ára landsliðinu
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.