Undirbúningur fyrir Þjóðhátíðina er á lokasprettinum, – allt að verða klárt fyrir þessu miklu 139 ára gömlu hátíð Vestmannaeyinga. Ófáar hátíðir með Þjóðhátíð sem fyrirmynd, hafa í áranna rás, risið og hnigið, vítt og breitt um landið. En alltaf lifir Þjóðhátíðin góðu lífi. Sótt hefur verið að henni úr ýmsum áttum, þar sem sumir hafa reynt að finna allt neikvætt við hana, og gert það að helstu einkennum Þjóðhátíðar, en látið annað kjurt liggja. „En þrátt fyrir böl og alheimsstríð, verður haldin Þjóðhátíð“ segir í gömlum Þjóðhátíðartexta. Halldór Halldórsson var á ferðinn um helgina og myndaði undirbúninginn í bak og fyrir og fór síðan með Druslugöngunni úr Herjólfsdal í bæinn.