Vestmannaeyjar hluti af því hver maður er
Palli, sem hér er með afstráknum Magnúsi Berg lætur sig ekki vanta á völlinn þegar ÍBV spilar. Hann var nokkuð sáttur við sína menn gegn Blikum í Kópavogi þann 27. júlí, þótt leikurinn hafi endað með 1:0 sigri Blika. Úrslitin í fótboltanum eru jú ekki alltaf sanngjörn. Mynd Teresa M Dembinska.

Páll Magnússon, fjölmiðlamaður og fráfarandi forseti bæjarstjórnar Vestmannaeyja eftir fjögurra ára setu er viðmælandi í stóru viðtali við Ómar Garðarsson í síðasta blaði Eyjafrétta.

Í viðtalinu fer Páll um víðan völl. Ræðir sterka stöðu Vestmannaeyja og framtíðarsýn fyrir samfélagið, samgöngumálin, uppbyggingu atvinnulífsins og árin í bæjarstjórn. En ekki síður rifjar hann upp persónulegar sögur úr æsku og lífi sínu í Eyjum.

Lesendur fá meðal annars að heyra skemmtilegar Þjóðhátíðarminningar, af hverju ein fyrsta ástin endaði með handarbroti. Hvers vegna honum þykir vaktin í hliðinu með fjölskyldunni vera annar skemmtilegasti hluti Þjóðhátíðar og hvernig Bjarnarey og vináttan við Súlla á Saltabergi urðu honum svo kær.

Auðvitað er ÍBV líka fyrirferðarmikill þáttur í spjallinu. Páll segir félagið vera miklu meira en íþróttafélag og lýsir því hvernig ástin á Eyjunum, fólkinu og hefðunum hefur fylgt honum alla tíð.

Þetta er hlýlegt og persónulegt viðtal þar sem alvara og húmor fara saman og sýnir vel hvers vegna Vestmannaeyjar eru, eins og Páll orðar það sjálfur, órjúfanlegur hluti af því hver maður er.

Sjá nánar í nýjasta blaði Eyjafrétta.

 

 

Nýjustu fréttir

ÍBV og Macron í samstarf
Nýtt skólaár hafið hjá Grunnskóla Vestmannaeyja
Fimm ástæður fyrir JÁ-inu mínu
Stefnir í stærsta ágústmánuðinn í botnfiskvinnslu í langan tíma
Skólasetning GRV fór fram í morgun
Rúmlega tíundi hver hefur kosið utan kjörfundar
Ný strætóáætlun til og frá Landeyjahöfn
Vetrarstarf ÍBV hefst í dag
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.