Vilja hækka frístundastyrk í 50.000 kr.

Frístundastyrkur var til umræðu á fundi fræðsluráðs sem fram fór í gær. Vestmannaeyjabær styrkir tómstundaiðkun allra barna á aldrinum 2 – 18 ára. Markmið og tilgangur frístundastyrksins er; a) styrkja börn á umræddum aldri til þátttöku í uppbyggilegu frístundastarfi og auka möguleika til þáttttöku óháð efnahag, b) ýta undir aukna hreyfingu og félagsþátttöku barna, c) vinna gegn óæskilegu brottfalli í eldri aldurshópi iðkenda og d) auka virkni í frístundatíma barna. Nýtingin á styrknum hefur verið að aukast milli ára. Árið 2020 var hlutfallið miðað við fjölda barna í umræddum aldurshópum 58,5% sem nýttu styrkinn að fullu en það sem af er ársins er hlutfallið orðið 62,4%. Stærsti hluti styrkjarins fer í að niðurgreiða félagsgjöld hjá ÍBV-íþróttafélagi (rúmur helmingur) og Fimleikafélagsins Ránar (um þriðjungur).
Frístundastyrkur er einn liður í því að gera Vestmannaeyjar að barnvænu samfélagi. Umsóknarferli styrksins hefur verið einfaldað eftir að hægt var að merkja við nýtingu á styrknum um leið og greitt er fyrir æfingagjöld barna í íþrótta- og tómstundastarfi.

Í niðurstöður ráðsins kemur fram: “Það er ánægjulegt að fleiri séu að nýta sér styrkinn. Með komu frístundarstyrksins hafa börn tækifæri á fjölbreyttara íþrótta- og tómstundastarfi. Þátttaka í skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi getur haft veigamikil forvarnaráhrif. Meirihluti E- og H- listans leggja til að gert verði ráð fyrir því í gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2022 að styrkurinn hækki um 15.000 kr og verði því 50.000 kr. á barn. Mun sú hækkun taka gildi 1. janúar 2022 og felur framkvæmdastjóra að fylgja málinu eftir.” Fulltrúar E og H lista samþykkja umrædda tillögu en fulltrúar D lista sitja hjá.

Nýjustu fréttir

Tveir fyrir einn… og ævilöng áhrif
Íbúar hvattir til að móta framtíð atvinnulífs í Eyjum
„Mikilvægt að við fáum að láta rödd okkar heyrast“
Eyjamenn geta lyft sér af botninum með sigri á Þór
Eyjakonur mæta taplausu liði ÍR í dag
ÍBV tryggði sér sæti í 8-liða úrslitum Powerade bikarsins með sigri á ÍR
Fullnaðarhönnun World Class ekki skilað
Saltfiskur í forgrunni hjá félögum VSV á Conxemar
viðburðir
Atvinna
13. október 2026
17:15
Íbúaþing um atvinnustefnu í Eldheimum
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.