Vilja reisa minnisvarða um Pelagus slysið
Mynd: Sig­ur­geir Jónas­son

Á fundi umhverfis og skipulagsráðs í síðustu viku lá fyrir ósk frá Björgunarfélagi Vestmannaeyja um að setja upp minnisvarða um Pelagus slysið við útsýnispall á nýja hrauni. Eftirfarandi frásögn um slysið er fengin úr Sjómannadagsblaði Vestmannaeyja árið 1982.

Hörmulegt slys varð á strandstað Belgíska togarans Pelagus 21. janúar 1982 er Hannes Óskarsson foringi björgunarveitar Hjálparsveitar skáta og Kristján K. Víkingsson læknir á Sjúkrahúsi Vestmannaeyja fórust á strandstað ásamt tveimur skipverjum af Pelagusi, en björgunarsveitir úr Eyjum björguðu 6 skipverjum á land.
Foráttubrim var um nóttina þegar Pelagus strandaði skammt sunnan við Prestabót á Kirkjubæjarhrauninu. Hafði Pelagus verið í togi hjá öðrum Belga, en slitnaði taugin austan við Eyjar og strandaði togarinn um kl. 4 um nóttina.
Björgunarsveitir Björgunarfélags Vestmannaeyja, Hjálparsveitir skáta, slökkviliðsmenn og fleiri björguðu 4 skipverjum af hvalbak skipsins skömmu eftir að skipið strandaði um nóttina, en einn skipverji fórst við skipshlið er reynt var að sjósetja gúmmíbjörgunarbát.
Þetta er í fyrsta skipti sem björgunarmenn við Ísland farast, en í þetta skipti eins og ótal mörg önnur hafa björgunarmenn lagt sig í mikla lífshættu við björgun mannslífa. Eyjamenn og aðrir landsmenn voru harmi slegnir eftir slys þetta.

Nýjustu fréttir

Ísland vann stórsigur á Úkraínu í undankeppni EM
Blásið til hausttónleika
Leggja til aukaferju með Herjólfi á sumrin
Hörgeyrargarður og ábyrgð okkar gagnvart framtíðinni
Elliði Snær og félagar mæta Úkraínu í kvöld
Bæjarstjórn fundar í dag – bein útsending
Kvöldopnun með afsláttum og uppákomum
Erfitt vor en sterkt sumar hjá Herjólfi
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.