Vill fresta málsmeðferð um þjóðlendur á svæði 12
Þórdís_kolbrun_eyjar (1000 x 667 px) (1)
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir fjármála- og efnahagsráðherra. Mynd/samsett

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur óskað eftir því að málsmeðferð vegna þjóðlendna á svæði 12 (eyjar og sker) verði frestað svo unnt sé að endurskoða kröfur ríkisins með hliðsjón af betri gögnum.

Þann 2. febrúar sl. voru settar fram kröfur fyrir hönd ríkisins um þjóðlendur á svæði 12 sem varða eyjar og sker. Í febrúar sendi svo ráðherra óbyggðanefnd bréf þar sem óskað var eftir því að hún endurskoðaði fyrri afstöðu sína til þess að nýta ákvæði í þjóðlendulögum um að gefa þeim sem kalla til eignarréttinda á svæðinu kost á að lýsa kröfum sínum áður en fjármála- og efnahagsráðherra lýsti kröfum fyrir hönd ríkisins. Með bréfi í sama mánuði hafnaði nefndin beiðni ráðherra, segir í til­kynn­ingu á vef fjár­málaráðuneyt­is­ins.

Að við endurskoðun sé unnt að draga stórlega úr fyrri kröfum ríkisins á svæðinu

Þar segir ennfremur að fyrri kröfugerð ríkisins vegna svæðisins hafi verið til nokkurrar umræðu undanfarið og nýlega hafa komið fram kortaupplýsingar og önnur gögn sem gefa tilefni til gagngerrar endurskoðunar á henni. Gert er ráð fyrir að við endurskoðun sé unnt að draga stórlega úr fyrri kröfum ríkisins á svæðinu og jafnframt að endurskoðaðar kröfur verði í betra samræmi við meðalhóf og gögn. Til þess þarf lengri tíma til að vinna málið.

Fjármála- og efnahagsráðherra hefur því lagt fram kröfu til óbyggðanefndar um að frekari málsmeðferð vegna svæðisins verði frestað þar til betri afmörkun þess liggur fyrir. Leiðarljós við þá vinnu verði m.a. að draga úr ágreiningi og skapa grundvöll fyrir betri sátt um málsmeðferðina.

Erum að stíga öruggt skref í því að kröfurnar byggist á meðalhófi og almennilegum gögnum

„Ég vænti þess að óbyggðanefnd taki vel í mína ósk enda hefur nefndin bent á að það er á forræði ráðherra að taka kröfurnar til endurskoðunar á hvaða stigi máls sem er. Þótt ríkið dragi með þessu kröfugerðina ekki formlega til baka, sem gæti kallað á lagabreytingu, þá er aðalatriðið hér að við erum að stíga öruggt skref í því að kröfurnar byggist á meðalhófi og almennilegum gögnum.“ segir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir, fjármála- og efnahagsráðherra.

Nýjustu fréttir

Tómas Bent lék allan leikinn í sigri Hearts
Óskar stefnir á þriðja sætið hjá Sjálfstæðisflokki
Bjargið fær rausnarlega gjöf
Loðnufrysting í fullum gangi
Emil skoraði í sigri Íslands á Eistum
Fjórtán gefa kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins
Líflegur laugardagsmorgunn – fullfermi og loðnuvinnsla í fullum gangi
Sækist eftir 3. sæti
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.