�?orgeir Baldursson var um tíma ríkisstjóri í verslun ÁTVR í Eyjum. Hann sagði þá sögu í commentakerfi eyjafretta, að áður en �??Ríkið” kom í Hvíta húsið var inngangurinn í það inngangur að matstofu Vinnslustöðvarinnar og merki hennar VSV greypt í gólfið. Sagan segir að eitt sinn hafi tveir félagar á leið í �??Ríkið” stigið yfir þetta merki og annar spyr hinn hvort hann viti hvað þetta merki standi fyrir. �?etta er merki Vinnslustöðvarinnar segir hinn. Nú er það þannig, ég hélt að þetta væri á vegum �??Ríkisins” og stæði fyrir ,,Viltu Sopa Vinur,,.