Vísitala norsk-íslenskrar síldar lækkar um 13%
24. júní, 2020

Bráðabirgðaskýrsla um niðurstöður alþjóðlegs leiðangurs frá maí síðastliðnum í Noregshafi og aðliggjandi hafsvæðum liggur nú fyrir. Eitt af meginmarkmiðum leiðangursins er að meta magn og útbreiðslu norsk-íslenskrar síldar og annara uppsjávartegunda. Því til viðbótar er ástand hafsins og vistkerfisins kannað, m.a. hitastig og magn átustofna. Leiðangurinn er skipulagður innan vinnuhóps Alþjóða Hafrannsóknaráðsins (ICES). Þátttakendur í leiðangrinum auk rannsóknaskipsins Árna Friðrikssonar, voru rannsóknaskip frá Noregi, Færeyjum, Danmörku og Rússlandi. Þar sem leiðangurshlutinn í Barentshafi, sem snýr að ungsíld, hefur tafist munu niðurstöður þess hluta verða bætt inn í skýrsluna í ágúst.

Norsk-íslensk síld í maí þetta árið var í mestum þéttleika í suðvestanverðu hafinu þar sem 2013 árgangurinn (7 ára) var allsráðandi, og á austursvæðinu þar sem 2016 árgangurinn (3 ára) var yfirgnæfandi (mynd 1). Heildarbergmálsvísitala síldar var 4,25 milljón tonn í samanburði við 4,9 milljón tonn árið 2019 sem er lækkun um 0,62 milljón tonn (13%). Vísitölur síðustu ára hafa sveiflast lítillega en heilt yfir sýna þær nokkuð stöðuga stofnstærð (mynd 2). Árgangurinn frá 2016 var í mestum fjölda (57%) og lífmassa (41%). Vísitala hans nú við fjögurra ára aldur er hærri en stóra árgangsins frá 2004, sem setur stærð 2016 árgangsins í samhengi (mynd 3). Á komandi árum má því búast við að 2016 árgangurinn verði enn meira áberandi í lífmassa stofnsins. Miðað við þessa síldardreifingu má ætla að eldri hlutinn muni halda sig austur og norður af Íslandi í sumar líkt og undanfarin ár.

Kolmunna var að finna utan landgrunns á mest öllu athugunarsvæðinu ef undan er skilið austur af Íslandi í kalda Austur-Íslandsstraumnum. Mesti þéttleikinn var á suðurhluta athugunarsvæðisins svo og með landgrunnsbrún Noregs. Þessi leiðangur nær ekki yfir allan kolmunnastofninn, og þá síst fullorðna veiðistofninn. Niðurstöðurnar gefa þó vísbendingar um stærð nýrra árganga. Heildarbergmálsvísitalan fyrir kolmunna var metinn 390 þúsund tonn og lækkaði um 26% frá því í fyrra. Mest mældist af 2019 árganginum (32,5%) og er vísitala hans af sömu stærðagráðu og vísitölur árganganna frá 2013-2015 og 2019 á sama aldri, en þeir hafa reynst vera stórir.

Lítilsháttar lækkun var milli ára á vísitölum um magn átu fyrir allt rannsóknarsvæðið að undanskyldu svæðinu austur af Íslandi þar sem var lítilsháttar hækkun (mynd 4). Um miðbik og austur hluta svæðisins eru vísitölurnar undir meðaltali áranna 1995-2019. Á norðurhluta svæðisins, þar sem jafnan voru hæstu gildin, eru vísitölurnar hinsvegar nálægt sögulegu meðaltali.

Hitastig sjávar var svipað eða rétt yfir meðaltali síðustu 25 ára á 0-200 m dýpi á vestari hluta hafsvæðisins en undir meðaltali í hlýrri sjónum austar og sunnar (mynd 5). Á 200-500 m dýpi var hitinn ýmist undir og yfir meðaltali.

Þessar niðurstöður, og þá einkum síldarmælinganna, verða meðal annars notaðar á fundi ICES í lok ágúst nk. þar sem vinna við stofnstærðarmat og ráðgjöf þessara uppsjávarfiskistofna fer fram. Meira um niðurstöður frá leiðangrinum er að finna í bráðabirgðaskýrslu.

vísitölur um lífmassa

Mynd 2. Vísitölur um lífmassa norsk-íslenskrar síldar í maí leiðöngrum frá 1995-2020. Fyrir árin 2008-2020 eru einnig sýnd 90% öryggismörk.

leiðangursvísitölur um fjölda

Mynd 3. Leiðangursvísitölur um fjölda eftir aldri (2-6 ára) hjá norsk-íslenskri síld þar sem þróun í hverjum árgangi er fylgt eftir (t.d. bleiki liturinn sýnir fjölda eftir aldri í stóra árganginum frá 2004 og fjólubláa liturinn sýnir 2016 árganginn).

vísitölur um magn átu

Mynd 4. Vístölur um magn átu í maí 1995-2020 eftir mismunandi hafsvæðum í Noregshafi og aðliggjandi hafsvæðum. Bláa, rauða og gráa línurnar sýna miðbik og austur hluta svæðisins en svarta og græna vestari hlutann (Jan Mayen og Ísland).

hitastig sjávar

Mynd 5. Hitastig sjávar (til vinstri) og frávik í hitastigi frá meðaltali áranna 1995-2019 (til hægri) á 50-200 m dýpi í maí 2020.

hafogvatn.is

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
4. tbl. 2025
4. tbl. 2025

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson
Mest lesið
viðburðir
Ársþing ÍBV
13. maí 2025
20:00
Ársþing ÍBV
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst