Vöndum okkur
22. ágúst, 2007

Samgöngur til Vestmannaeyja eru án efa mikilvægasta hagsmunamál okkar Eyjamanna. Ekkert hefur verið meira rætt seinustu ár og við bæjarbúar í raun klofnað í fylkingar. Þetta hefur sjálfsagt átt sinn þátt í því að ekki hafa verið tekin stór skref í samgöngumálum Eyjanna síðan núverandi Herjólfur hóf siglingar.

Hins vegar fóru af stað hvers konar draugasögur og dómsdagsspár um siglingar í Bakkafjöru og því miður hefur það orðið til þess réttum upplýsingum hefur ekki í öllum tilvikum verið haldið til haga.

Dómsdagsspár Grétars Mars, þingmanns okkar Sunnlendinga, hafa orðið mér tilefni vangavelta enda lítur hann á sjálfan sig sem sérfræðing í siglingum og hafnargerð. Þótt þingmaðurinn gefi lítið fyrir hugmyndir „landkrabba” um samgöngur tel ég ástæðu til að benda honum á að ég hef sem íbúi Vestmannaeyjabæjar í 38 ár öðlast nokkra reynslu af siglingum með Herjólfi og þá ekki síst af siglingum í vondum veðrum þar sem ég hef sjálfur verið sjóveikur með sjóveik börn. Getur þingmaðurinn sagt slíkt hið sama?

Dylgjur og rangfærslur

Í langan tíma hef lagt mig fram um að lesa mér til um það sem tengist samgöngum til Vestmannaeyja og langar mig í fáum orðum að svara dylgjum Grétars Mars um siglingar Herjólfs í Bakkafjöru. Svörin byggja á opinberum gögnum sem þingmenn sunnlendinga hljóta að hafa kynnt sér vandlega.

1. Grétar Mar hefur haldið því fram að áhættan við siglingar muni aukast þegar Herjólfur hefur siglingar í Bakkafjöru.

Hið rétta er að skv. skýrslu Det Norske Veritas er áhættan af því að sigla milli Bakkafjöru og Eyja aðeins 1/6 af því að sigla milli Þorlákshafnar og Eyja. Með tilkomu Bakkfjöruhafnar væri því verið draga úr áhættusiglingum en ekki að auka áhættuna eins kemur fram í máli Grétars Mars.

2. Grétar Mar hefur haldið því fram að í kostnaðaráætlun Bakkafjöruhafnar og nýs Herjólfs sem er 5,6 milljarðar sé ekki inni kostnaður vegna uppgræðslu og vegaferðar.

Hið rétta er að hvort tveggja er inni í þeirri áætlun. Hitt er svo annað mál að áhyggjur mínar sem heimamanns sem bíður eftir bættum samgöngum eru ekki af kostna��arhliðinni. Það er annarra að meta kostnað og standa við áætlanir. Fyrir mér vakir það eitt að samgöngur verði bættar svo mikið sem verða má.

3. Grétar Mar hefur í ljósi sinnar sérþekkingar haldið því fram að lengja þurfi garðana um 300 metra til að gera höfnina öruggari.

Hið sanna er að lenging garða um 300 metra hefur enga skynsamlega samsvörun við verkefnið og skilar engum ábata nema síður sé. Með lengingu garða um 300 metra frá hugmyndum Siglingastofnunar Íslands ná þeir langleiðina út að rifinu en ekki út fyrir það. Herjólfur myndi því lenda í mesta ölduóróanum á rifinu og þá yrðu aðeins 200 metrar að hafnaropi samkvæmt tillögu þingmannsins, í stað 500 metra samkvæmt tillögu Siglingastofnunar Íslands. Með hugmyndum sérfræðingsins Grétars Mars væri Herjólfur því í ölduróti á sama tíma og hann væri að sigla inn í hafnaropið. Þær hugmyndir um lengingu garða sem þarna koma fram draga því úr siglingaöryggi og auka kostnað við verkefnið um nokkra milljarða.

4. Grétar Mar hefur haldið því fram að grunnbrot verði í Bakkafjöru við fjögurra metra ölduhæð og sjálfsagt hefur hann sér þar til halds og traust sérfræðiþekkingu sína.

Hið sanna er að miðað við að dýpi á rifinu er 6 metrar verða grunnbrot ekki fyrr en við 5-7 metra ölduhæð og það er háð því hvort það er fjara eða fl��ð. Viðmiðunarmörk sem Siglingastofnun Íslands hefur sett fram til að ákveða frátafir miðast við að kennialda gefi stök grunnbrot. Tala þessi er þó nokkuð lægri en líkantilraunir þeirra gáfu til kynna að ætti að vera leyfilegt og það sem þekkt er frá öðrum innsiglingum.

Lífæð samfélagsins

Vestmannaeyjar, sem hingað til hafa nánast eingöngu grundvallast á fiskveiðum, þurfa á risastökki í byggðaþróun að halda. Stærsta skrefið verður tekið með nýrri tegund af samgöngum sem stytta siglingu og gerir fólk minna háð brottfarar- og komutíma.

Í ljósi ákvörðunar ríkisstjórnar um að ekki verði ráðist í jarðgöng að svo stöddu er það eindreginn og einróma vilji bæjarstjórnar Vestmannaeyja að kannað verði af fullri alvöru hvort siglingar Herjólfs í Bakkafjöru geti mætt kröfum heimamanna.

Dómsdagsspár sjálfskipaðra sérfræðinga eru ekki til þess fallnar að verða til stoðar, ekki frekar en innantómur fagurgali. Vöndum okkur, því ábyrgðin er mikil.

Höfundur er bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.

Facebook
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
14. tbl. 2024
14. tbl. 2024

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2282 940x940
29. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Petrúnella Aðalheiður Kristjánsdóttir og Felix Örn Friðriksson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

NÝBURAR

IMG 2234 800x800
28. júní 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Helen Dögg Karlsdóttir og Gísli Ingi Gunnarsson

Til að geta skoðað nánari upplýsingar þarftu að vera áskrifandi og vera skráður inn.

Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst