Margrét Lára bætti markametið í dag

Margrét Lára hefur þar með skorað 23 mörk í 28 leikjum, hreint ótrúlega tölfræði hjá þessari frábæru knattspyrnukonu. Næst markahæst er svo Ásthildur Helgadóttir, sem hefur skorað 22 mörk en í 66 leikjum þannig að það er ljóst að Margrét á eftir að bæta metið til mikilla muna ef fram heldur sem horfir. (meira…)

Trúir á Guð og sjálfan sig

Fæðingardagur: 3. júlí 1988.Fjölskylduhagir: �?g er einhleyp. Foreldrar: Jóna Kristbjörg Hafsteinsdóttir og Guðmundur Hansson. Systkini: Hafsteinn Már , Anna María og Sigríður Emma Heimili: Spóarimi 11, Selfossi. Skólaganga: Er á listnámsbraut í Fjölbrautaskóla Suðurlands og lýk stúdentsprófi næsta vor. Helstu áhugamál: Listir og menning, hönnun og tónlist.Uppáhaldsstaður á Íslandi: Seyðisfjörður.En erlendis: Spánn.Hvaða hlutar í eigu […]

Tveir fengu næturgistingu um helgina

Tveir fengu reyndar að gista fangageymslur lögreglu aðfaranótt sunnudags en þeir höfðu verið til vandræða við Týsheimilið, en þar var haldin árshátíð Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum. Sú skemmtun fór reyndar að mestu leyti ágætlega fram en þó bar á nokkurri ölvun á meðal gesta. Sjö kærur liggja fyrir vegna brota á umferðarlögum og má m.a. nefna […]

Hræðist mest Hellisheiði í aftakaveðri

Fæðingardagur: 12. Febrúar 1987Fjölskylduhagir: Foreldrar mínir búa ásamt bróðir mínum í Reykjavík, systir mín býr með manninum sínum í Breiðholtinu og þau eiga 2 stráka saman, 1 og 5 ára. Svo á ég hund sem heitir Erró.Foreldrar: Særós og Baldur.Systkini: Hannes og Jenný Baldursbörn. Heimili: Selfoss – Reykjavík, flakka mikið á milli.Skólaganga: �?g stunda nám […]

Mark Schulte ekki með ÍBV í sumar

Hann hefur því komist að samkomulagi við ÍBV um riftun samningsins þar sem leikmaðurinn sá ekki fram á að geta beitt sér að fullu í sumar.Á spjallsíðu ÍBV segir Gísli Hjartarsson frá því að hann sé að taka við aðstoðarþjálfarastöðu í heimalandi sínu. “Schulte fékk félagaskipti til USA fyrir um það bil mánuði síðan en […]

Fyrirliðarnir framlengja

Báðir munu þeir leika með ÍBV í það minnsta næstu tvö tímabilin en á heimasíðu ÍBV segir að það sé mikill fengur fyrir ÍBV að semja við þá kappa. “�?etta eru gleðifréttir enda Páll ekki aðeins burðarás liðsins síðustu ár heldur einnig gríðarlegur karakter og verið einn öflugasti varnarmaður landsins. Páll er mikill Eyjamaður og […]

Gunnar vill til Mallorca

Gunnar missti af tveimur síðustu leikjum Íslands í keppninni, gegn Lettlandi og Svíþjóð í haust, vegna meiðsla.Gunnar fékk sitt fyrsta tækifæri í byrjunarliði Hannover á laugardaginn þegar liðið gerði jafntefli, 1:1, við Schalke og fékk góða dóma fyrir frammistöðu sína.Nánar er rætt við Gunnar Heiðar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.www.mbl.is greindi frá.�?jálfari Hannover ánægður með […]

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.