Kjaftfullt á jólaballi

Jólagleðin náði hámarki í Hvíta húsinu á öðrum degi jóla þegar hljómsveitin SSSól steig á svið. Húsið var troðfullt af fólki en miðar á ballið seldust nánast upp í forsölu. Búast má við álíka fjölda á nýársnótt en þá spilar Bjórbandið og kántrísveitin Klaufar. Skoða myndir. (meira…)
Tveir frá ÍBV á æfingar hjá U-19 ára landsliðinu í knattspyrnu

Tveir leikmenn ÍBV hafa verið valdir til æfinga með U-19 ára landsliði karla í knattspyrnu. Þetta eru þeir Arnór Eyvar Ólafsson og Þórarinn Ingi Valdimarsson en báðir léku þeir talsvert með ÍBV í sumar þrátt fyrir ungan aldur. Valdir voru tveir hópar og eru leikmennirnir samtals 56. Fyrrverandi þjálfari meistaraflokks ÍBV, Kristinn R. Jónsson er […]
Minnsta fækkun síðan 1993, en fækkun engu að síður

Stöðug fólksfækkun í Eyjum síðan 1991 er Vestamannaeyingum öllum mikið áhyggjuefni. Því er niðurstöðu Hagstofu Íslands um mannfjölda jafnan beðið með blöndu af spennu og kvíða. Undanfarin ár hafa verið okkur þungbær hvað þetta varðar. Til að mynda fækkaði Eyjamönnum um 100 í fyrra og 122 árið 2004. Því hefur aukin áhersla verið lögð á […]
Set styrkir knattspyrnumyndina

Á 52 ára afmælisdegi knattspyrnudeildar Umf. Selfoss, þann 15. desember sl., boðaði sögu- og minjanefnd deildarinnar til hátíðarfundar í Tíbrá. Þar voru sýnd brot úr heimildarmynd Matthíasar Sigurgeirssonar um sögu deildarinnar auk þess sem handsalað var samkomulag við Set sem er aðal kostunaraðili myndarinnar. (meira…)
Harpa �?sk íþróttamaður ársins

Íþróttamaður ársins 2007 í Skaftárhreppi var krýndur á Þorláksmessu við hátíðlega athöfn. Að þessu sinni varð Harpa Ósk Jóhannesdóttir, frjálsíþróttakona úr ungmennafélaginu Skafta, fyrir valinu. (meira…)
Sara Kristín með bestan árangur

Selfyssingurinn Sara Kristín Finnbogadóttir var verðlaunuð fyrir bestan heildarárangur stúdenta við brautskráningu í Fjölbrautaskóla Suðurlands í síðustu viku. Sara Kristín, sem útskrifaðist af náttúrufræðibraut, fékk sérstaka viðurkenningu skólanefndar auk námsstyrks frá Hollvarðasamtökum skólans. Alls brautskráðust 66 nemendur frá skólanum auk eins fyrrverandi nemanda sem lauk stúdentsprófi frá Verkmenntaskólanum á Akureyri. (meira…)
Skarst illa á fæti
Vélsleðamaður slasaðist þegar hann ók á vegg á sveitabæ í Grímsnesi síðdegis á öðrum degi jóla. Maðurinn slasaðist á fæti og skarst talsvert þegar hann fór með annan fótinn í gegnum rúðu. (meira…)
Alvöru jólaball á laugardag
Sigga Beinteins og Grétar Örvars leika undir dansi á jólaballi í Hvíta húsinu á Selfossi á laugardag. Þeir félagar Giljagaur og Stúfur hafa einnig lofað að mæta og dansa í kringum jólatréð með krökkunum. (meira…)
Kaupa hlut í Brörup Maskinhandel
Nýverið var gengið frá samningum um kaup Jötunn Véla á 30% eignarhlut í fyrirtækinu Brörup Maskinhandel á suður Jótlandi í Danmörku. Brörup Maskinhandel er eitt af elstu og best reknu vélasölufyrirtækjum í Danmörku, stofnað árið 1929 og hefur verið rekið með góðum hagnaði í mörg ár. Áætluð velta Brörup Maskinhandel árið 2008 er um 3 […]
Sunnlendingum fjölgar

Á vef Sambands sunnlenskra sveitarfélaga, www.sass.is er greint frá fjölda íbúa á Suðurlandi en Hagstofan gaf út tölur um íbúafjölda fyrir stuttu. Þar kemur fram að Sunnlendingum fjölagði um 561 á síðasta ári eða um 2,45%. Hins vegar fækkaði íbúum í Vestmannaeyjum um 35 eða úr 4075 í 4040. Íbúum í Vestmannaeyjum hefur hins vegar […]
Íbúum Vestmannaeyjabæjar fækkaði árið 2007

Samkvæmt nýútgefnum tölum frá Hagstofu Íslands þá hefur íbúum Vestmannaeyja fækkað um 35 á árinu. Í enda árs 2006 voru Vestmannaeyjingar 4075 en eru í dag með 4040 íbúa. Samkvæmt þessum tölum hefur íbúum Vestmannaeyja fækkað um 600 á 10 árum. Hérna má sjá íbúaþróun síðustu 10 ára: Vestmannaeyjar 1997 4.640 1998 4.594 1999 4.585 […]
Ekki hægt með réttu, eða góðri samvisku, að kalla þetta fjölskylduhátíð

Nýverið kom út bókin Öll trixin í bókinni þar sem Einar Bárðarson segir frá ýmsu því sem hann hefur lent í sem umboðsmaður og tónleikahaldari. Einar skipulagði fyrir nokkrum árum útihátíðina Eldborg og einnig kom hann að skipulagningu Galtalækjahátíðar árið 2006.Í bókinni segir Einar m.a. aðkomu sinni að Galtalækjarhátíðinni 2006 og kemur hann m.a. þetta. […]
Yður er í dag frelsari fæddur – eða var hann bara “endurfæddur” ?

Þessar upplýsingar skilja alla kristna menn eftir sem einfeldninga er trúa á staðlausa stafi því allan tímann var bara verið að fjalla um endurris sólarinnar á himni. Merkilegt að þessi uppristrú á sólinni skuli hafa orðið til í þeim löndum þar sem skammdegis gætir ekki og varla sjónarmunur á sólarhæð hvort er um að ræða […]
Hugur okkar til komandi árs er jákvæður

Við á eyjar.net sendum út á nokkurn hóp eyjamanna tvær spurningar til að forvitnast hvernig árið 2007 hefði verið og hvort að einhverjar væntingar væri til ársins 2008. Elliði Vignisson bæjarstjóri var fyrstur til að svara og munum við birta svör þessara eyjamanna daglega næstu daga. Hvernig var árið 2007 fyrir þig og fjölskyldu þína?Árið […]
Lét Kára draga sig á snjóbretti

Flestir nota jólafríið sitt til að sinna þeim hugðarefnum sem öllu jöfnu sitja á hakanum í dagsins önn. Margir glugga í bækur, fara í göngutúra og sinna fjölskyldunni. Þessi ungi maður fór hins vegar aðra og heldur óhefðbundna leið til að hafa ofan af sér en hann þeystist um á snjóbretti í hlíðum Eldfells og […]
Lítill fugl stoppar jólahaldið

Ritstjórn Eyjafrétta fékk senda stutta sögu frá Óskari Pétri Friðrikssyni en sagan átti sér stað á aðfangadag. Þá fangaði hundur heimilisins haftyrðling sem er flækingsfugl hér á landi en lifir á Grænlandi. Fuglinn var að niðurlotum kominn og fékk frítt fæði og húsnæði yfir nóttina en var sleppt að því loknu. Söguna má lesa hér […]
Verður Margrét Lára íþróttamaður ársins 2007?

Á morgun föstudag verður tilkynnt hver verður valinn Íþróttamaður ársins 2007 á Grand Hótel Reykjavík. Knattspyrnukonan Margrét Lára Viðarsdóttir er í hópi 10 efstu í ár í vali íþróttafréttamanna en Margrét var einnig á topp 10 listanum á síðasta ári. Margrét Lára á að baki gott ár fyrir Val og Íslenska landsliðið og nýverið var […]
Lítill fugl stöðvar jólahaldið

Fjölskylda í Vestmannaeyjum fékk óvænta heimsókn á aðfangadagskvöld þegar labradorhundurinn Brjánsi bauð haftyrðli heim í jólastemminguna. Hundurinn, sem vanur er að hjálpa til við að ná og sleppa lundapysjum hafði farið út að viðra sig með eiganda sínum þegar örþreyttur haftyrðill varð á vegi þeirra. Þreyta fuglsins gerði það að verkum að hundurinn átti auðvelt […]