Leikmannakynning ÍBV – Pablo Punyed

Nú fer að styttast í fyrsta leik í Pepsi deildinni sem gleður alla fótboltaáhugamenn eflaust mikið. ÍBV strákarnir í meistarflokki karla hafa nú gert kynningarmyndbönd af leikmönnum liðsins fyrir keppnistímabilið 2016. Í dag birtist fyrsta myndbandið og er það kynning á Pablo Punyed. Kynninguna má sjá hér. (meira…)
Karla- og konukvöld knattspyrnudeildar ÍBV

Karla- og konukvöld knattspyrnudeildar ÍBV verður haldið laugardaginn 23. apríl næstkomandi í Höllinni og á Háaloftinu í Vestmannaeyjum. Eyjólfur Kristjánsson og Hálft í hvoru skemmtir og leikur fyrir dansi, lið sumarsins verður kynnt og Einsi Kaldi býður upp á glæsilegan mat að vanda. Miðaverð er 7500 krónur. Kynjaskipt eftir hæðum fyrri part kvölds en kynin […]
Siglingum í Landeyjahöfn fagnað með grillveislu

Núna klukkan 15.30 fór Herjólfur í sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn síðan um miðjan nóvember sl. Eyjamenn hafa beðið þessa með óþreyju og nú er komið að því, Landeyjahöfn í fyrsta skipti í fimm mánuði. Farþegar sem áttu bókað frá Eyjum 15:30 til �?orlákshafnar færast í 15:30 ferð til Landeyjahafar. Farþegar sem áttu bókað frá […]
Minn tími í þessu er búinn

Eftir að fréttir af tengslum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og �?lafar Nordal innanríkisráðherra við aflandsfélög birtust sauð upp úr í Reykjavík. Efnt var til mótmæla á Austurvelli strax á mánudag og á þriðjudag vék Sigmundur úr stól forsætisráðherra fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni. Geir Jón �?órisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Reykjavík hefur flestum öðrum […]
Herjólfur siglir í Landeyjahöfn í dag!

Loksins koma fréttirnar sem allir hafa beðið eftir, Herjólfur siglir til Landeyjahafnar í dag. Farþegar sem áttu bókað frá Eyjum 15:30 til �?orlákshafnar færast í 15:30 ferð til Landeyjahafar. Farþegar sem áttu bókað frá �?orlakshöfn 19:15 færast í 16:30 ferð frá Landeyjahafar en geta einnig haft samband við afgreiðslu og farið í 22:00 líka. Biðlistar […]
Bakstur og veisla ehf. skal greiða launamismun

Í gær var kveðinn upp dómur í máli Sigurjóns �?orkelssonar gegn Bakstri og veislu ehf.(BV). Sigurjón réði sig til starfa í bakaríi Baksturs og veislu ehf. í maí 2012 og starfaði þar uns hann lét af störfum í lok júlí 2013. Í málinu krafðist hann þess að fá greiddan mismun á launum sem honum hefði […]
Barna- og fjölskyldumessa í Landakirkju

Næstkomandi sunnudag kl. 11:00 verður barna- og fjölskyldumessa í Landakirkju. Sunnudagaskólalögin verða sungin undir viltum gítarleik Jarls Sigurgeirssonar í bland við sálmasöng hins frábæra Kórs Landakirkju sem líkt og áður er undir stjórn Kitty Kovács. Sr. Guðmundur �?rn bíður svo upp á krassandi biblíuspennusögu. (meira…)
Siglt í Landeyjahöfn seinnipartinn í dag eða enn eitt fíflaríið?

Í tilkynning til farþega Herjólfs vegna siglinga segir að í morgun föstudag hafi Herjólfur siglt til �?orlákshafnar. Væntingar eru um að mögulega verði hægt að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn á morgun. Hugsanlega þarf að sigla eftir flóðatöflu og myndu þá brottfarartímar taka mið af því. Tilkynning verður send út milli klukkan 13 og 14 í […]
Vortónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja

Vortónleikar Lúðrasveitar Vestmannaeyja verða haldnir í Kviku menningarhúsi sunnudaginn 17. apríl næstkomandi kl.16:00. Á efnisskránni er tónlist úr Disney teiknimyndum auk kvikmyndatónlistar. Sérstakir gestir á tónleikunum eru Skólalúðrasveit Vestmannaeyja sem mun spila nokkur lög með sveitinni Allir velkomnir og aðgangur er ókeypis. (meira…)