Í gær var kveðinn upp dómur í máli Sigurjóns �?orkelssonar gegn Bakstri og veislu ehf.(BV). Sigurjón réði sig til starfa í bakaríi Baksturs og veislu ehf. í maí 2012 og starfaði þar uns hann lét af störfum í lok júlí 2013. Í málinu krafðist hann þess að fá greiddan mismun á launum sem honum hefði borið að fá sem menntaður bakari og þeim launum sem hann fékk greidd og tóku mið af því að hann hefði verið ráðinn til almennra verkamannastarfa.
Í dómi Hæstaréttar kom fram að ekki hefði verið gerður skriflegur ráðningarsamningur við Sigurjón eins og skylt væri samkvæmt gildandi kjarasamning. Krafa Sigurjóns var að BV ehf. greiddi sér 2.053.737 krónur ásamt dráttarvöxtum og málskosntað. en BV krafðist sýknu af öllum kröfum stefnanda. Til vara er þess krafist að krafan yrði lækkuð verulega. Jafnframt var gerð gagnkrafa að upphæð 215.000 krónur til skuldajafnaðar við ógreidda orlofs- og desemberuppbót vegna bótaskyldu stefnanda vegna brotthlaups. �?á er krafist málskostnaðar að mati dómsins.
Hæstréttur sneri við dómi Héraðsdóms sem hafði sýknað BF af kröfum Sigurjóns. Dómsorð Hæstaréttar er að stefndi, Bakstur og veisla ehf., greiði áfrýjanda, Sigurjóni �?orkelssyni, 2.053.737 krónur með dráttarvöxtum samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. ágúst 2013 til greiðsludags. Stefndi greiði áfrýjanda samtals 1.200.000 krónur í málskostnað í héraði og fyrir Hæstarétti.