Núna klukkan 15.30 fór Herjólfur í sína fyrstu ferð í Landeyjahöfn síðan um miðjan nóvember sl. Eyjamenn hafa beðið þessa með óþreyju og nú er komið að því, Landeyjahöfn í fyrsta skipti í fimm mánuði. Farþegar sem áttu bókað frá Eyjum 15:30 til �?orlákshafnar færast í 15:30 ferð til Landeyjahafar. Farþegar sem áttu bókað frá �?orlakshöfn 19:15 færast í 16:30 ferð frá Landeyjahöfn en geta einnig haft samband við afgreiðslu og farið kl. 22:00.
Biðlistar er enn eins og þeir voru. Farþegar á biðlista hafi samband við afgreiðslu ef þeir vilja fara í seinni ferðina til eða frá Landeyjahöfn. Að þessu tilefni verður slegið upp grillveislu við Herjólfsafgreiðsluna í dag klukkan 17:00 með SS og �?lgerðinni og eru allir velkomnir. Nánar um siglingar á morgun laugardag síðar í dag.
Samkvæmt ölduspá lítur vel út með siglingar í Landeyjahöfn á morgun, óvíst á sunnudaginn en gott næstu daga á eftir.
Veðrið á morgun:
Hæg breytileg átt og skýjað að mestu, en vestan 3-8 undir kvöld og lítilsháttar súld. Suðvestan 5-10 á morgun og dálítil væta. Hiti víða 3 til 8 stig.
Veðurspá gerð 15.04.2016 09:33
Á sunnudag:
Vaxandi norðan- og norðaustanátt, víða 13-18 m/s síðdegis. Slydda eða snjókoma, en skúrir eða slydduél framan af degi um landið sunnanvert. Talsverð ofankoma frá Tröllaskaga allt austur á norðanverða Austfirði. Hiti frá frostmarki í innsveitum fyrir norðan, upp í 7 stig á Suðausturlandi.
Á mánudag:
Norðan 8-13 fyrir hádegi og snjókoma eða él norðan og austanlands, en bjartviðri sunnantil. Lægir smám saman og styttir upp síðdegis. Hiti 1 til 6 stig að deginum sunnan heiða, annars vægt frost.
Á þriðjudag:
Suðaustanátt og slydda eða rigning með köflum, en þurrt NA-lands. Heldur hlýnandi, hiti 2 til 7 stig síðdegis.
Á miðvikudag:
Suðlæg og síðar vestlæg átt og skúrir eða slydduél, en úrkomulítið austanlands. Hiti 1 til 7 stig.
Á fimmtudag:
Fremur hæg breytileg átt og þurrt að kalla á landinu.
Spá gerð: 15.04.2016 09:57. Gildir til: 22.04.2016 12:00.
Á myndum sést þegar bílar keyrðu um borð og var Friðrik Benónýsson einn þeirra og brosti hann breitt.