Siglt í Landeyjahöfn seinnipartinn í dag eða enn eitt fíflaríið?
Í tilkynning til farþega Herjólfs vegna siglinga segir að í morgun föstudag hafi Herjólfur siglt til �?orlákshafnar. Væntingar eru um að mögulega verði hægt að sigla til Landeyjahafnar seinnipartinn á morgun. Hugsanlega þarf að sigla eftir flóðatöflu og myndu þá brottfarartímar taka mið af því. Tilkynning verður send út milli klukkan 13 og 14 í dag. Farþegar eru vinsamlegast beðnir um að fylgjast vel með fréttum á Facebook síðu Herjólfs, heimasíðu Herjólfs www.herjolfur.is og/eða á Textavarpinu síðu 415.
Tekið hefur miklu lengri tíma að opna höfnina í vor en gert var ráð fyrir og hafa engar áætlanir staðist þar um. Veður hefur verið einstaklega gott allan þennan mánuð en það er eins stundum áður, þegar kemur að Landeyjahöfn, að um einhverja tilraunastarfsemi er að ræða. Tækin standast ekki væntingar og annað eftir því. �?að er eins og verið sé að hafa Vestmannaeyinga að fíflum, þeir geti étið það sem úti frýs í samgöngumálum.

Nýjustu fréttir

Bæjarstjórn gagnrýnir boðaðan niðurskurð til Herjólfs
ÍBV vann öruggan sigur á Stjörnunni – Sandra fór á kostum
Heimir Hallgrímsson heldur varnarnámskeið í Eyjum í desember
Vestmannaeyjabær leggur sex milljónir í hlutafjáraukningu í Eyjagöngum
Skálað og skrafað í Miðstöðinni – myndir
Eyjakonur vilja halda í við topplið Hauka
Glæsileg söngveisla þriggja kóra í Eyjum
Þoka hér en ekki þar
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.