Minn tími í þessu er búinn
Eftir að fréttir af tengslum Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar, forsætisráðherra, Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra og �?lafar Nordal innanríkisráðherra við aflandsfélög birtust sauð upp úr í Reykjavík. Efnt var til mótmæla á Austurvelli strax á mánudag og á þriðjudag vék Sigmundur úr stól forsætisráðherra fyrir Sigurði Inga Jóhannssyni. Geir Jón �?órisson, fyrrverandi yfirlögregluþjónn í Reykjavík hefur flestum öðrum meiri reynslu af mótmælum í Reykjavík. Vakti hann oft athygli fyrir vasklega framgöngu án þess að sýna yfirgang og náði að róa þá æstustu þegar mest gekk á. Geir Jón hefur látið af störfum í lögreglunni og situr nú á friðarstóli í Vestmannaeyjum með henni Ingu sinni. Hann hefur fylgst með því sem er að gerast í Reykjavík, mótmælum á Austurvelli sem náðu hámarki á þriðjudaginn. Tölur um fjölda mótmælenda hafa verið nokkuð á reiki, lögreglan segir þá hafa verið í kringum 10 þúsund á meðan aðstandendur segja að allt að 25 þúsund manns hafi verið á Austurvelli þegar mest var. Geir Jón segir klárt og kvitt hvað margir komist fyrir á Austurvelli
sem er um 7000 fermetrar. �??Í frétt í DV 29. janúar 2009 er farið yfir þetta í viðtali við mig og Fríðu Björk Eðvarðsdóttur, landslagsarkitekt. Niðurstaðan var að í mesta lagi gætu 8 þúsund komist fyrir á Austurvelli og 10 þúsund til 12 þúsund ef að göturnar í kring sem afmarka Austurvöll og húsaþyrpinguna sem rammar hann af eru teknar með,�?? sagði Geir Jón. Hann sagði að síst væri ofáætlað í þessum tölum því Fríða Björk hefði gert ráð fyrir einum og hálfum á hvern fermetra. �??�?á værum við að tala um 4600 manns en ég held að þegar mótmælendur voru hvað flestir hafi þeir verið þetta 10 til 12 þúsund, hátt í tveir á hvern fermetra. �?egar lögreglan áætlar fjöldann er þessi aðferð notuð og því er allt tal um að 25 þúsund manns hafi verið á staðnum út í hött.�?? Geir Jón segir ekki nýtt að aðstandendur mótmæla séu ósáttir við tölur lögreglu. �??Í mótmælum fyrir nokkrum árum á Ingólfstorgi áætlaði ég að um 1000 til 1300
manns væru á staðnum en aðstandendur fullyrtu að þeir væru um 3000. �?g fékk ljósmyndara til að taka mynd af efstu hæð Morgunblaðshallarinnar. Hann lét okkur fá mynd sem var skipt niður í reiti þannig að það var auðvelt að telja. Niðurstaðan var að í hæsta lagi hefðu 1200 manns verið á torginu til að mótmæla.�?? Geir Jón segir gott að fylgjast með því sem er að gerast fyrir framan Alþingishúsið úr fjarlægð. �??Minn tími er búinn og kemur ekki aftur. �?g var alltaf í þessum slag ef eitthvað var að gerast en ég er mest hissa á, að þeir sem nú vilja að hlustað sé á mótmælendur hlustuðu ekki á kröfur mótmælenda eftir fyrri Icesavesamninginn í júní 2009. Mál sem skipti okkur öll svo miklu máli,�?? sagði Geir Jón en sér hann einhvern mun á því sem nú er að gerast á Austuvelli og því sem hann kynntist? �??�?etta er bara svipað nema að nú er ekki kastað steinum í lögreglu og Alþingishúsið en allt annað er látið vaða.”

Nýjustu fréttir

Svava Tara hjá Sölku fer yfir sumartískuna 2026
Eyjan okkar
Brjóstaskimun í Eyjum
Tvö fyrirtæki frá FÍV komin í úrslit fyrirtækjasmiðju
Ómálefnaleg veiðiráðgjöf á hvölum
Við þurfum að hætta þessum bútasaumi
Úr fótbolta yfir í hlaup
Aníta Sif er Eyjamaður mánaðarins
Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.