Sumarfrí 2018
3. september, 2018

Fór í sumarfrí 27. júlí og mætti aftur til vinnu 27. ágúst. Tók því nákvæmlega mánaðar frí, sem er sennilega lengsta frí sem ég hef tekið. Sumarfríið mitt byrjaði með ferð norður í perlu norðursins, Grímsey, en það er alltaf jafn gaman að koma þangað og þessi tilfinning sem ég fæ alltaf þegar ég er kominn um borð í Herjólf að nú sé ég í raun og veru kominn heim.

Grímsey kemst sennilega næst þessu hjá mér, en fuglalífið, fólkið og bara eyjan öll er eitthvað sem ég mæli sérstaklega með að fólk heimsæki og frétti m.a. af því að móðir mín lét sig hafa það, núna seinni partinn í ágúst, að gera sér ferð út í Grímsey. 3 tíma sigling, 4 tímar á eyjunni og 3 tíma sigling tilbaka, en eins og hún orðaði það, það var svo sannarlega þess virði.

Helgina á eftir var síðan komið að stór hátíð okkar eyjamanna, Þjóðhátíðinni sjálfri og ég ætla að byrja á því að hrósa þjóðhátíðarnefnd fyrir þann kjark sem þau sýndu með því að láta loksins verða af því að losa okkur við þetta leiðinda atriði sem heitir slagsmálin um stæðin, en mér fannst þetta takast afskaplega vel, ég veit að það voru margir sem voru á móti þessu, en í fyrsta skipti í þó nokkur ár byrjaði Þjóðhátíðin ekki á leiðinlegum myndböndum af því sem fylgt hefur þessu kapphlaupi um stæðin og ég vona svo sannarleg að þessi aðferð sé komin til að vera. Fyrir mitt leyti var Þjóðhátíðin alveg frábær í alla staði. Einhverjir voru að kvarta undan leiðinda veðri á sunnudagskvöldinu, en ég er nú svo skrýtinn að mér finnst eitthvað vanta ef við fáum ekki a.m.k. smá bleytu og einhvern vind, en þetta truflaði mig ekki neytt.

Eitt langar mig að nefna líka sérstaklega tengt Þjóðhátíðinni, ég styð lögreglustjórann í Vestmannaeyjum heils hugar í því, að láta rannsóknar hagsmuni og hagsmuni þeirra sem verða fyrir hvers konar áföllum ganga fyrir og mér finnst allt í lagi, þó að fréttamenn sem hafa atvinnu af og aðrir sem hafa gaman af að tala niður Þjóðhátíðina okkar þurfa að bíða aðeins eftir fréttunum. 

Helgina eftir Þjóðhátíð var svo tekinn rúntur um landið okkar með fellihýsi og byrjuðum við á því að fara að Úlfljótsvatni, sem ég hafði ekki gert áður, og langar að óska öllum skátum til hamingju með þetta svæði. Frábært að koma þangað, ekki nema 20 mín frá Selfossi, öll aðstaðan til fyrirmyndar og þarna á ég svo sannarlega eftir að koma aftur síðar. 

Tókum svo nokkra daga við að elta sólina norður í land og fundum sólina á Blönduósi, stoppuðum þar í 2 daga, tók svo strikið heim á leið enda framundan spennandi ferð til Færeyja og þangað fórum við 3. helgina í ágúst, en okkur hafði verið boðið að fara með út í eyjuna Sandey sem er frekar sunnarlega í Færeyjum, en þangað er siglt með ferju í hálftíma, ekki ósvipað og í Landeyjahöfn. Sandey er eitthvað stærri en Heimaey, þar búa rúmlega 1200 manns í nokkrum litlum þorpum, en þrátt fyrir það þá liggur nú þegar fyrir áætlun um það að gerð verði neðansjávargöng sem taka á í notkun árið 2024. Ætlunin er að göngin tengi saman Straumey, Sandey og Suðurey innan nokkurra ára. Þetta verða lengstu göng í Færeyjum og mikil framtíðar sýn í þessu, en það kostaði töluvert hangs í báðar áttir að komast með ferjunni sem er frekar gamaldags og lúin. 

Við keyrðum um alla eyjuna og komum í 5 þorp en það vakti sérstaklega athygli mína, að í öllum þessum 5 þorpum var ágætis bryggju aðstaða, en aðeins í einu þorpinu voru einhverjir bátar, en að sögn heimamanna eru fáir eða enginn sem hefur atvinnu af sjómennsku í þessum þorpum. Eitt lítið frystihús er á einum stað, en allur fiskur sem kemur í það, kemur með ferjunni þó að þar sé fínasta höfn. En það er gríðarlega margt að sjá á þessari eyju, ofboðslega falleg hús í þorpunum og sum þeirra frá því á 19. öld. Við gistum í hótel Skálavík, sem er nýtísku hótel. Þar er hægt að leigja sér veislusal, einnig er hægt að leigja sér heitan pott og litla kofa til að grilla sér mat í, en við tókum einmitt þátt í einu slíku þar sem allir sitja í hring inni í kofanum og grillið er í miðjunni. Náttúran svíkur að sjálfsögðu engan sem heimsækir Færeyjar, en ég tók eftir því í fréttunum í vikunni að í fyrsta skipti í sögunni náðu Færeyingar því að fara yfir 51 þúsund íbúa, en töluvert er um að ungt fólk sé farið að sækja í að flytja til Færeyja.

Ég var aðeins 3 daga í Færeyjum, enda ætlaði ég að nota síðustu dagana í fríinu til að klára ýmislegt sem ég átti eftir að klára hérna heim við, sem ég og gerði, en það vakti sérstaka athygli mín að flugið frá Færeyjum til Reykjavíkurflugvallar tók aðeins 1 klst og 10 mín, en ég var svo óheppinn að koma út úr flugstöðinni á slaginu 17:00 þegar háanna tíminn er í umferðinni í Reykjavík, en það tók mig nákvæmlega 1 klst að komast frá flugvellinum að Kringlunni, sem ég giska á að séu svona ca. 5-6 km og ég trúi ekki öðru en að ráðamenn borgarinnar fari nú að gera eitthvað í þessu. 

Það er alltaf jafn gaman að koma heim og bara ágætt að vera byrjaður að vinna aftur. Framundan er nýtt fiskveiðiár með töluverðum auknum aflaheimildum, ég ætla því að enda þetta með því að óska öllum sjómönnum og útgerðarmönnum gleðilegs nýs fiskveiðiárs.

Facebook
X
LinkedIn
Pinterest
Reddit
Email
Print
Skoða blaðið á netinu
EF Fors 10 Tbl 2025
10. tbl. 2025

NÝBURAR

Aaro Orrason Vähätalo
30. ágúst 2025
Drengur
Turku Finnland
Laura Vähätalo og Orri Arnórsson

NÝBURAR

76e2af77 02d9 48eb B73a 24c32e2403ac
4. janúar 2025
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Katrín Rós Óðinsdóttir og Sæþór Örn Garðarsson.

NÝBURAR

Drengur
3. desember 2024
Drengur
Kaupmannahöfn
Selma Jónsdóttir og Matthías Óskarsson

NÝBURAR

Drengursnorrason
23. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Svanhildur Eiríksdóttir og Sindri Sigfússon

NÝBURAR

Lovisu
8. október 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Lovísa Jóhannsdóttir og Jökull Andri Sigurðsson

NÝBURAR

462560821 8781643355208571 772013136079801246 N
17. október 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Aníta Björk Friðriksdóttir og Sigurbjörn Þórður Árnason.

NÝBURAR

Tandri
13. september 2024
Drengur
Hsu, Vestmannaeyjum.
Dagur Arnarsson og Svava Tara Ólafsdóttir.

NÝBURAR

Bfec0ecf E4f8 466a 89f9 94c607ba1ec5
24. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Óskar Elías Zoega Óskarsson og Díana Ólafsdóttir

NÝBURAR

Natan Orn
14. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík.
Þórey Lúðvíksdóttir og Elías Skæringur Guðmundsson

NÝBURAR

F4c5612c Ae8a 4d77 B83d C5f14f2007fe
26. september 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík.
Þorgeir Þór Friðgeirsdóttir og Elín Inga Halldórsdóttir

NÝBURAR

Moller
20. september 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
William Thomas Möller og Jenný Guðnadóttir.

NÝBURAR

E50c5f3f Ddd5 4ee2 8685 Dad7e0e417ad
2. ágúst 2024
Stúlka
Fæðingadeild HVE, Akranes
Sigurdís Egilsdóttir og Gunnlaugur Örn Guðjónsson

NÝBURAR

Drengur Hristov
2. ágúst 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Todor Hristov og Marta Möller

NÝBURAR

Nýburi
30. júlí 2024
Stúlka
Heimahúsi á Dalvík
Alexandra Ósk Gunnarsdóttir og Brynjar Ingi Óðinsson

NÝBURAR

Nýfædd stúlka.
4. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Theodóra Ágústsdóttir & Carlos Guani

NÝBURAR

IMG 3174
15. júlí 2024
Drengur
Balingen, Þýskalandi
Sandra Erlingsdóttir og Daníel Þór Ingason

NÝBURAR

tryggvason
30. júní 2024
Drengur
Reykjavík
Tryggvi Stein Ágústsson og Guðný Erla Guðnadóttir

NÝBURAR

nyburar
4. júlí 2024
Drengur
Reykjavík
María Rós Sigurbjörnsdóttir og Bjarni Heimir Kristinsson

NÝBURAR

jon
20. júní 2024
Drengur
Landspítalinn, Reykjavík
Logi Snædal Jónsson og Svala Björk Hólmgeirsdóttir

NÝBURAR

Admin Ajax
10. júlí 2024
Stúlka
Landspítalinn, Reykjavík
Unnur Birna Hallgrímsdóttir og Guðmundur Sundström
Mest lesið
Fylgstu með

Skráðu þig á fáðu nýjustu tilkynningar fyrst

Dýptarmæling

Ekki liggja fyrir nýjar mælingar 

Góð ráð fyrir siglingu

Sjóveiki

Hvað er sjóveiki?

Sjóveiki er misræmi milli skynfæra líkamans sem senda boð til heilans um hreyfingu – kyrrstöðu.

Þegar einstaklingur er úti á sjó þá nema skynjarar í vökvafylltum gangi í innra eyra hreyfingu og senda boð til heilans að einstaklingur sé á hreyfingu. Augun senda hins vegar boð til heilans um að viðkomandi sé kyrr. Heilinn á erfitt með að vinna úr þessum misvísandi og ósamræmdu upplýsingum og sendir skilaboð til magans um að tæma sig – þ.e. veldur uppköstum.

Einkenni sjóveiki eru þreyta, ógleði, svimi, svitakóf og uppköst.

Góð ráð til að hindra sjóveiki:

  • Góð hvíld daginn fyrir brottför. Að fara seint að sofa og snemma um borð í bát fer ekki vel saman ef fólk er hætt við sjóveiki.
  • Forðist áfenga drykki daginn fyrir brottför
  • Forðist djúpsteiktan, brasaðan eða saltan mat daginn fyrir siglingu.
  • Borðið góðan morgunverð. Borðið gjarnan hvítt brauð, hafragraut og ávexti þó ekki sítrus ávexti.
  • Forðist mikið koffein. Mikið kaffi er ekki það sem maganum líkar fyrir sjóferð.
  • Hafðu mat með þér á sjó. Gott er að hafa samlokur með kjúklingi eða kalkún. Kjötið er fitusnautt og brauðið er róandi í maga. Hafðu endilega eitthvað til að grípa í sem er létt í maga. Bananar eru mjög góðir til að narta í ef þú finnur fyrir ógleði en einnig er gott að hafa létt kex eða annað sem er ekki salt eða fitumikið.
  • Drekkið vel af vatni en einnig er gott er að drekka kóla drykki eða engiferöl í sjóferðinni

Lyf við sjóveiki þ.e. lyf sem slá á einkennin og fást án lyfseðils í apóteki.

  • Koffínátín – fæst án lyfseðils
  • Postafen – fæst án lyfseðils
  • Scopolamin plástur – lyfseðilsskyltEinnig má fá armbönd gegn ferðaveiki sem sumir telja að hjálpi.

Önnur ráð:

  • Engifer er jurt sem nýlega hefur fengið aukna athygli vegna þess að því er haldið fram að hún geti slegið á ógleði sem fylgir sjóveiki. Til forna tuggðu kínverskir sjómenn engiferrót til að draga úr sjóveiki. Flest lyf sem virka á ógleði verka á heilann en engifer virkar aðeins á magann. Ráðlagt er að taka 1000 mg. hylki hálftíma fyrir brottför. Einnig má taka eitt eða tvö 500 mg. hylki sem eru til viðbótar á ferðalaginu. Ekki er ráðlagt að drekka coke með engifertöflum.
  • Piparminta og te eru einnig gömul húsráð við ferðaveiki.
  • Sumum finnst betra að taka sýrujafnandi töflur, Alminox eða slíkt áður en þú heldur á sjó og þá er gott að hafa box með út á sjó.

Hvar í skipinu er best að vera o.fl.

  • Minna finnst fyrir hreyfingu og veltingi ef maður er staddur næst miðju bátsins.
  • Mörgum finnst gott að vera í kulda, t.d.að vera úti á dekki og láta vindinn leika um sig.
  • Matarlykt fer illa í þá sem hætt er við sjóveiki og einnig pústið frá bátnum.

Þungun:

Þungaðar konur sem þjást af sjóveiki mega nota koffinátín í litlum skömmtum en best er að ráðfæra sig við lækni eða lyfjafræðing.
Þunguðum konum er ekki ráðlagt að nota engifer þar sem það er ekki staðfest hvort það geti haft skaðleg áhrif á fóstur.

Eyjafréttir
Friðhelgisyfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.