Hann kallar sig læknirinn í eldhúsinu þegar hann sinnir ástríðu sinni að eldamennskunni en heitir Ragn­ar Freyr Ingvars­son og er lyf- og gigt­ar­lækn­ir og er hann með vefsíðuna sem ber ein­mitt heitið Lækn­ir­inn í Eld­hús­inu. Hann hef­ur skrifað mat­reiðslu­bæk­ur og tekið upp fjölda sjón­varpsþátta þar sem hann kynn­ir sér mat og mat­ar­menn­ingu.

Um þess­ar mund­ir er hann önn­um kaf­inn við að taka upp sjón­varpsþátt fyr­ir Sjón­varp Sím­ans sem kem­ur til með að heita Lambið og miðin, en við þær upp­tök­ur er ferðast víða um Ísland og þar á meðal til Vestmannaeyja. Í gær tók hann upp einn þáttinn og grillaði heilt lamp neðst á Skólaveginum. Veðrið var gott og margir sem litu við til að forvitnast hvað væri í gangi.