Hildur Sólveig Sigurðardóttir sparar ekki stóru orðin í grein sinni á vefmiðlum í gær þar sem hún talar um að meirihlutinn hafi, þó ekki séu liðnir nema tveir mánuðir frá kosningum, þverbrotið sín kosningaloforð og sé í hróplegri mótsögn við sjálfan sig. Tilefnið virðist vera fundur bæjarráðs fyrr um daginn. Ótrúlegt en satt birtist greinin aðeins nokkrum mínútum eftir að fundi bæjarráðs var slitið. Höfum líka í huga að bæjarráð fundar fyrir luktum dyrum og því er ekki úr vegi að hrósa Hildi fyrir snör greinarskrif!

Í bæjarráði var á dagskrá umræða um samgöngur. Bókun fulltrúa sjálfstæðismanna undir þeim lið kom nokkuð á óvart en þó ekki að þar kom fram hinn hefðbundni stíll sjálfstæðismanna í eyjum; sleggjudómarnir, þeir sömu og Hildur notar í grein sinni. Í bókun fulltrúa sjálfstæðismanna er þannig talað um „alvarlegar athugasemdir“, „að breytingar séu eingöngu til þess fallnar að tefja verkefnið“ og „að verkefninu sé unninn óafturkræfur skaði“.

Mér finnst fátt um þennan æsingarstíl. Það sem mér þykir verra eru hrein og klár ósannindi sem koma fram bæði hjá Hildi og fulltrúa d-lista í bæjarráði, að boðað sé til hluthafafundar þvert á samþykktir félagsins. Hið sanna er að til fundarins er boðað með lögmætum hætti og þetta er staðfest í mati lögmanns bæjarins. Að auki var fulltrúa d-lista tjáð um áform um að boða til hluthafafundar þó nokkru áður en til hans var boðað, þvert á það sem kemur fram í bókun hans í bæjarráði.

Algild regla er að nefndir, ráð og stjórnir á vegum sveitarfélaga endurspegli niðurstöðu lýðræðislegra kosninga. Á fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir kosningar er einmitt byrjað á að skipa í ráð og nefndir. Því hlýtur að teljast eðlilegt að breytingar séu gerðar og að þær endurspegli úrslit kosninganna. Höfum líka í huga að breytingar geta verið og eru yfirleitt til góðs og þær eigum við ekki að óttast, bara breytinganna vegna.

Sagan af smalastráknum sem kallaði „Úlfur, úlfur“ án þess að nokkur tæki mark á honum, á ennþá við í dag. Sjálfstæðismenn sjá nefnilega svikin kosningaloforð, gerræðisleg vinnubrögð, pretti og leyndarhyggju í vinnubrögðum meirihlutans í flestum málum í öllum ráðum og nefndum. Þá skiptir ekki máli hvort skipa eigi í almannavarnarnefnd, afnema eigi vísitölutengingu leikskólagjalda eða hvort útvíkka eigi frístundastyrkinn til stuðnings við fjölskyldur í bænum. Alls staðar sjá sjálfstæðismenn úlfa í verkum meirihlutans, og kalla því hástöfum um götur og torg. Líkt og í ævintýrinu hættir fólk með tímanum að taka mark á hrópum smalastráksins.

Njáll Ragnarsson

Formaður bæjarráðs Vestmannaeyja.