Vestmannaeyjahlaupið verður á morgun laugardag. Allt samkvæmt áætlun.

Veðurspáin fyrir laugardaginn er ekki slæm, en Herjólfur mun sigla til Þorlákshafnar í fyrramálið. Þannig að ekki er hægt að koma á morgun í hlaupið.

Þeir sem geta komið í dag með Herjólfi kl.19:00 frá Þorlákshöfn geta breytt miðanum og fá frítt. Hafið samband með því að senda okkur skilaboð. Ölduspáin gerir ráð fyrir lækkandi öldu við Landeyjahöfn á morgun. Ef siglt verður til Landeyjahafnar seinnipartinn mun Herjólfur útvega far til Þorlákshafnar fyrir þá sem geyma bílinn þar.

Enn hægt að skrá sig á hlaup.is.